Vilhjálmur kallar uppsagnirnar hjá Eflingu „mistök“ sem hægt hefði verið að komast hjá

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins kallar hópuppsögnina hjá Eflingu „mistök“ í pistli sem hann ritar á vef Verkalýðsfélags Akraness í dag.

Vilhjálmur Birgisson var nýlega kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins og er einnig formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Vilhjálmur Birgisson var nýlega kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins og er einnig formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Auglýsing

Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness og Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ist telja að „það hafi verið mis­tök“ hjá stjórn Efl­ingar „að velja hóp­upp­sögn til að ráð­ast í þær nauð­syn­legu skipu­lags­breyt­ingar sem þau höfðu boðað í sinni kosn­inga­bar­átt­u.“

„Það er mat for­manns að stjórn Efl­ingar hefði getað náð fram þeim skipu­lags­breyt­ingum án þess að grípa til þess­ara hóp­upp­sagna,“ skrifar Vil­hjálmur í pistli sem birt­ist á vef VLFA í dag, en þar kemur hann fram athuga­semdum við það sem hefur verið haft eftir honum um málið í fjöl­miðlum hingað til.

Í pistl­inum segir að „sumar fyr­ir­sagnir í fjöl­miðl­um“ hafi ekki verið í sam­ræmi við það sem hann hafi sagt og vísar Vil­hjálmur í því sam­hengi til fréttar á mbl.is sem bar fyr­ir­sögn­ina „Vil­hjálmur ber traust til Sól­veig­ar“ og fréttar á Vísi sem bar fyr­ir­sögn­ina „Vil­hjálmur tekur upp hansk­ann fyrir Sól­veig­u.“

Í hvor­ugri þess­arra frétta er haft eftir Vil­hjálmi það sem hann segir í dag, að hann álíti upp­sagn­irnar á skrif­stofu Efl­ingar hafa verið „mi­s­tök“, þó að hann hafi sagt að það sé miður þegar gripið væri til hóp­upp­sagna.

Auglýsing

Í dag segir hann að það sé hans „bjarg­fasta skoð­un“ að um mis­tök hafi verið að ræða og kallar hann þetta mál „allt hið ömur­leg­asta“ og seg­ist vona að allir starfs­menn sæki aftur um störf hjá Efl­ingu og að eins margir og kostur er fái end­ur­ráðn­ingu.

„Til að svara spurn­ing­unni aftur um hvort for­maður styðji þessa hóp­upp­sögn hjá Efl­ingu, þá er stutta svarið að sjálf­sögðu, nei, ekk­ert frekar en aðrar hóp­upp­sagnir sem eru á íslenskum vinnu­mark­aði og vill for­maður ítreka að hans mat er að hægt hefði verið að ná fram skipu­lags­breyt­ingum með öðrum hætti en hóp­upp­sögn,“ skrifar Vil­hjálmur einnig.

Á sama tíma og Vilhjálmur segir að Sólveig Anna og félagar í meirihluta stjórnar Eflingar hafi gert mistök með hópuppsögn tekur hann upp hanskann fyrir henni sem öflugri baráttukonu. Mynd: Bára Huld Beck.

Ber samt traust til Sól­veigar og tekur upp hansk­ann fyrir hana

Vil­hjálmur skrifar að þrátt fyrir þessar hóp­upp­sagnir á skrif­stofu Efl­ingar beri hann „svo sann­ar­lega“ traust til Sól­veigar Önnu hvað bar­áttu fyrir kjörum þeirra sem höllustum fæti standa varð­ar. Hann taki svo „hansk­ann upp fyrir henni“ sem öfl­ugri bar­áttu­konu fyrir að standa vörð um þá sem höllustum fæti standi á íslenskum vinnu­mark­aði.

„For­maður hefur einnig sagt í fjöl­miðlum að hann og Sól­veig Anna séu alls ekk­ert alltaf sam­mála en eitt er þau algjör­lega sam­mála um og það er það sem lýtur að því að tryggja að lág­marks­laun á íslenskum vinnu­mark­aði dugi fyrir nauð­þurftum frá mán­uði til mán­aðar og lág­tekju­fólk geti haldið mann­legri reisn. Þar er for­maður VLFA og for­maður Efl­ingar algerir sam­herjar og er það for­manni til efs að til sé meiri hug­sjón­ar­mann­eskja en Sól­veig Anna þegar kemur að því að berj­ast fyrir kjörum þeirra sem höllustum fæti standa í íslensku sam­fé­lag­i,“ skrifar Vil­hjálmur einnig.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent