Vilja breyta lögum til að bæta stöðu kvára og stálpa – Afi verður foreldri foreldris

Þingmenn Pírata og einn þingmaður Viðreisnar vilja breyta lögum þannig að kynskráning hafi ekki áhrif á hvers konar foreldrisnöfn fólk má velja sér. Þau vilja líka að kynhlutlaust fólk geti fengið gjaldfrjálst aukavegabréf.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata.
Auglýsing

Þing­flokkur Pírata og einn þing­maður Við­reisn­ar, Hanna Katrín Frið­riks­son, hafa lagt fram frum­varp um þrenns konar breyt­ingar á ýsmum lögum sem ætlað er að bæta stöðu kvára og stálpa í sam­fé­lag­in­u. 

Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu kemur fram að verði það að lögum verði fólki frjálst að velja end­ingu for­eldris­nafns óháð opin­berri kyn­skrán­ingu. „Þá verður öryggi fólks á ferða­lögum aukið með því að heim­ila fólki með hlut­lausa skrán­ingu kyns að eiga auka­vega­bréf með annarri kyn­skrán­ingu. Að lokum er lagt til að útgáfa auka­vega­bréfs og end­ur­nýjun vega­bréfs vegna breyttrar kyn­skrán­ingar verði gjald­frjáls.“

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Andrés Ingi Jóns­son en auk hans eru Arn­dís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dótt­ir, Björn Leví Gunn­ars­son, Eva Sjöfn Helga­dótt­ir, Gísli Rafn Ólafs­son og Hall­dóra Mog­en­sen úr Pírötum á frum­varp­inu auk áður­nefndrar Hönnu Katrínar úr Við­reisn. 

Vilja leið­rétta skekkju

Fyrsta breyt­ingin snýr að því að kyn­skrán­ing hafi ekki áhrif á það hvers konar for­eldrisnöfn fólk má velja sér. Þannig verði orðin for­eldri eða for­eldrisnöfn tekin upp í lögum um manna­nöfn í stað „föð­ur- og móð­ur“ eða „föð­ur- og móð­ur­nafna“. Þá verði orðin for­eldri for­eldri síns tekin upp í stað „afa síns“.  For­eldrisnöfn eru mynduð þannig að á eftir eig­in­nafni eða eig­innöfnum og milli­nafni, ef því er að skipta, kemur nafn for­eldris í eign­ar­falli með eða án við­bót­ar­innar son, dóttir eða bur. Þá verði orðin „hvort heldur er í karl­legg eða kven­legg“ í lög­unum felld á brott.

Auglýsing
Með þessu er ætlun þing­mann­anna að leið­rétta skekkju sem fylgdi sam­þykkt laga um kyn­rænt sjálf­ræði, vegna tveggja hlið­stæðra en ólíkra breyt­inga á lögum um manna­nöfn. Þing­menn­irnir segja það orka tví­mælis að á sama tíma og krafa um kynja­skipt eig­innöfn var fjar­lægð úr manna­nafna­lögum hafi slíkt hið sama ekki verið gert gagn­vart for­eldrisnöfn­um. „Nú­ver­andi fyr­ir­komu­lag stendur í vegi fyrir því að hluti kynsegin fólks geti að fullu nýtt rétt sinn til að breyta nafni sínu. Þetta stang­ast á við það mark­mið laga um kyn­rænt sjálf­ræði að tryggt sé að kyn­vit­und fólks njóti við­ur­kenn­ing­ar, enda er rétt­ur­inn til nafns stór þáttur í rétti fólks til að skil­greina kyn sitt. Því er hér lagt til að allar útgáfur for­eldris­nafna sem gild­andi lög heim­ila standi ein­stak­lingum til boða óháð kyn­skrán­ingu við­kom­and­i.“

Gjald­frjáls auka­vega­bréf fyrir þá sem ótt­ast ama á ferða­lögum

Önnur breyt­ingin er að hægt verði að gefa út auka­vega­bréf til fólks sem hefur ástæðu til að ótt­ast að kyn­hlut­laus skrán­ing í vega­bréfi verði því til ama á ferða­lög­um. Í grein­ar­gerð segir að fyrir því séu dæmi í lögum um heim­ild til útgáfu auka­vega­bréfa, t.d. til ein­stak­linga sem ferð­ast mikið til útlanda vegna vinnu. „Með þessum hætti geta stjórn­völd unnið að auknu öryggi kynsegin ein­stak­linga. Svo virð­ist sem ekki hafi verið hugsað fyrir þessum veru­leika þegar lög um kyn­rænt sjálf­ræði voru sett. Mark­mið þessa frum­varps er að bæta úr því og bregð­ast þannig við ákalli þeirra ein­stak­linga sem lögum um kyn­rænt sjálf­ræði var ætlað að standa vörð um.“

Þriðja breyt­ingin sem þing­menn­irnir vilja koma í gegn er að útgáfa nýs auka­vega­bréfs verði gjald­frjáls. „Ein­stak­lingar ættu ekki að þurfa að greiða auka­lega fyrir þau mann­rétt­indi sem átti að tryggja þeim með lögum um kyn­rænt sjálf­ræð­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent