„Það skiptir máli hver stjórnar, sögðu Vinstri græn í síðustu kosningum og margir spurðu sig hvort það væri ekki bara best að kjósa Framsókn. Þessir flokkar virðast aftur á móti hafa afsalað sér áhrifum til Sjálfstæðisflokksins.“
Þannig hóf Kristrún Frostadóttir ræðu sína undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag.
Hún sagði að það væri fjármálaráðherrann, Bjarni Benediktsson, sem réði nema þegar illa gengi. „Þá virðist hann ekkert vald hafa. Hans undirstofnanir sjá um þetta allt saman.“
Kristrún sagði jafnframt að Íslendingar stæðu frammi fyrir stórum verkefnum; eftirköstum heimsfaraldurs, mestu verðbólgu í 12 ár, brotnum húsnæðismarkaði og stríði í Evrópu – og á Alþingi mætti ríkisstjórnin eða fjármálaráðherra með fjármálaáætlun út kjörtímabilið sem fæli í sér einfaldan framreikning.
Vísaði hún í orð Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra og formanns Framsóknarflokksins þegar hann sagði í umræðu um húsnæðismál á Alþingi í síðasta mánuði að hann hefði lagt inn tillögur í fjármálaáætlun um verulega aukningu fjármuna til að standa að umfangsmikilli uppbyggingu félagslegs húsnæðis vegna húsnæðiskreppu.
„Formaður Framsóknarflokksins fékk nei frá hæstvirtum fjármálaráðherra. Það verður engin aukning heldur 2 milljarða króna niðurskurður í uppbyggingu húsnæðis. Ætli hæstvirtur fjármálaráðherra hafi sagt við formanninn að fjármálaráðuneytið hafi bara reiknað þetta svona út, svona eins og með Bankasýsluna sem ber alla ábyrgð á bankasölunni samkvæmt hæstvirtri ríkisstjórn?“ spurði hún.
Enn tækifæri til að sýna að þau séu ekki hætt í pólitík
Telur Kristrún að Vinstri græn og Framsókn hafi gengið inn í fullmótað kerfi Sjálfstæðisflokksins.
„Hendur allra eru bundnar. Enginn ætlar að bera ábyrgð.“ Þá sagði hún að svo virtist sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra væri hætt í pólitík. „Hún les bara upp þurrar yfirlýsingar um bankasöluna sem virðast skrifaðar af lögfræðingum í ráðuneytinu. Svo mætir hæstvirtur fjármálaráðherra með blússandi hroka eftir páskafrí og er kominn með nýja nálgun: Afneita, afneita, afneita.
Já, það skiptir máli hver stjórnar. En hér eru það ekki Vinstri græn og það virðist engu máli hafa skipt þótt fólk hafi kosið Framsókn. Þessir flokkar hafa enn tækifæri til að sýna að þau eru ekki hætt í pólitík með því að hætta þessari meðvirkni með Sjálfstæðisflokknum,“ sagði hún að lokum.