Þessi færsla er úr eldra greinasafni Kjarnans og gæti þess vegna birst furðulega.

Hvað er þetta Snapchat sem allir eru að tala um?

15428316609-ba2479e6f1-k.jpg
Auglýsing

Það er nýr höfð­ingi í daln­um. Hann heitir ekki Face­book heldur Snapchat. Þessi „nýi“ sam­fé­lags­mið­ill er um það bil að breyta því hvernig ung­lingar hegða sam­fé­lags­miðla­notkunn sinni með nýstár­legri tækni til að segja sög­ur.

Snapchat setti allt á annan endan í heimi sam­fé­lags­miðla þegar for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins höfn­uðu þriggja millj­arða dala til­boði frá Face­book 14. nóv­em­ber í fyrra. Næsta dag bauð Google fjóra millj­arða doll­ara en því til­boði var einnig hafn­að. En hversu kúl eru nýju krakk­arnir í blokk­inni? Geta þeir bara sagt nei þegar töffar­arnir bjóða þeim út að leika?

htt­p://www.youtu­be.com/watch?v=kKS­r6h5-fCU

Auglýsing

Fjöldi not­enda á Snapchat hefur rokið upp und­an­farin miss­eri. Flestir not­endur eru á aldr­inum 18 til 25 ára og yngri not­endur eru gríð­ar­lega virk­ir. Hátt í helm­ingur ung­menna á aldr­inum 12 til 24 ára í Banda­ríkj­unum hefur notað Snapchat, sam­kvæmt rann­sókn stjórn­mála­stofn­unnar Harvar­d-há­skóla. Virkni fellur síðan eftir því sem ald­ur­inn er hærri, sam­kvæmt rann­sókn­inni.

Tól fyrir nekt­ar­mynd­ir?



Fyrr í þessum mán­uð­i bár­ust fregnir af því að tölvu­þrjótar hefðu kom­ist yfir þús­undir nekt­ar­mynda sem sendar voru í gegnum Snapchat. Nekt­ar­mynd­irn­ar, sem flestar voru af ungum stúlkum á Norð­ur­lönd­um, höfðu verið vistaðar í hlið­ar­for­riti frá þriðja aðila svo örygg­is­veggir Snapchat voru í raun ekki brotn­ir. En spurn­ingin sem situr eftir er hvort appið sé ein­fald­lega bara tól fyrir ung­menn­i til að senda klám­fengnar myndir sín á milli?

Að­eins 1,6 pró­sent svar­enda sögð­ust nota Snapchat aðal­lega til kyn­boða, en 14,2 pró­sent sögð­ust hafa notað appið til að senda skila­boð í per­sónu­legri kantinum.

Í rann­sókn sem gerð var við háskóla í Was­hington og Seattle var hegðun á Snapchat rann­sökuð. Gengið var út frá því að appið væri aðal­lega notað í kyn­boð (e. sext­ing - ensk sam­suða af „text­ing“ og „sex“), þar sem ögrandi myndum væri varpað á milli not­enda.

Nið­ur­stöð­urnar voru hins vegar á allt annan veg. Aðeins 1,6 pró­sent svar­enda sögð­ust nota Snapchat aðal­lega til kyn­boða, en 14,2 pró­sent sögð­ust hafa notað appið til að senda skila­boð í per­sónu­legri kant­in­um. Meiri­hluti, eða tæp­lega 60 pró­sent, sögð­ust nota Snapchat til að senda grín eða skemmti­sög­ur.

Á mynd­band­inu hér að ofan má sjá vid­eó­bloggarann Casey Neistat fjalla um Snapchat-væð­ingu snjall­síma­kyn­slóð­ar­innar í Banda­ríkj­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiGræjur
None