Þessi færsla er úr eldra greinasafni Kjarnans og gæti þess vegna birst furðulega.
SamkeppniseftirlitsinsVef.jpg
Auglýsing
Þegar skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis var birt í apríl 2010 sendu höf­undar hennar skýr skila­boð um það sem væri að í íslensku atvinnu­lífi. Þar kom meðal ann­ars fram að gagn­sæi, góðir stjórn­ar­hættir og raun­veru­leg sam­fé­lags­leg ábyrgð fyr­ir­tækja væru þættir sem var veru­lega ábóta­vant fyrir hrun. Við­skipta­ráð, hags­muna­sam­tök þess atvinnu­lífs sem verið var að gagn­rýna hvað harðast, tók meira að segja undir þessa nið­ur­stöðu. Og allir lof­uðu bot og betr­un. ­Lítið virð­ist hafa orðið um efndir á þeim lof­orð­um.

Hlut­fall form­legs eign­ar­halds banka og skila­nefnda á fyr­ir­tækjum hefur vissu­lega lækkað skarpt á und­an­förnum árum, en það er samt sem áður enn mjög hátt. Bankar eiga níu pró­sent af hlutafé 120 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins og skila­nefndir fimm pró­sent.

Í skoðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á ráð­andi stöðu banka í stærri fyr­ir­tækj­um, en með því er átt við beint eign­ar­hald að við­bættum fyr­ir­tækjum sem eru með nei­kvætt virði hluta­fjár, versnar þessi staða enn. Bankar ráða yfir 25 pró­sent 120 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins sam­kvæmt nið­ur­stöðu eft­ir­lits­ins. Þegar ein­vörð­ungu er horft til inn­lends þjón­ustu­geira eru tögl og haldir banka enn meiri. Þeir ráða yfir 39 pró­sent fyr­ir­tækja innan hans.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir orðnir allt of fyr­ir­ferða­miklir

Auglýsing

Í skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er líka stað­fest sú til­finn­ing sem margir hafa; íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru orðnir óþægi­lega stórir eig­endur í íslensku atvinnu­lífi. Beina eign­ar­að­ild sjóð­anna er hægt að sjá í opin­berum skjöl­um. Óbein eign þeirra, sem er til að mynda í gegnum allskyns fjár­fest­inga- eða skulda­bréfa­sjóði sem reknir eru af eign­ar­stýr­inga­fyr­ir­tækjum banka eða öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækj­um, eru ógagn­særri.  Á hlut­haf­alistum stórra íslenskra fyr­ir­tækja eru sjóðir í eigu fyr­ir­tækja eins og Stefnis (sem Arion banki á), Lands­bréfa (sem Lands­bank­inn á), Íslands­sjóða (í eigu Íslands­banka), Júpiter, Auðar Capital, MP Banka og ýmissa ann­arra safn­reikn­inga á meðal 20 stærstu hlut­hafa flestra skráðra fyr­ir­tækja.

Í við­tali við Kjarn­ann í dag, sem birt er ann­ars staðar í þess­ari útgáfu, segir Hregg­viður Jóns­son, for maður Við­skipta ráðs, að líf­eyr­is­sjóðir eigi allt að helm­ing skráðra hluta­bréfa á Íslandi, bæði beint og óbeint í gegnum hlut­deildar eign í sjóð­um.

lestumeira

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiRitstjórn Kjarnans
None