Kjarninn og Nútíminn í samstarfi: Hvetjum ungt fólk til að kjósa

Yngstu kjósendurnir skila sér síður á kjörstað, samkvæmt rannsóknum. Kosningaþátttaka á Íslandi fer minnkandi. Samstarfsverkefni Kjarnans og Nútímans hvetur ungt fólk til að nota atkvæðisrétt sinn.

#kjósum
Auglýsing

Kjarn­inn og Nútím­inn hafa sett af stað sam­fé­lags­miðla­her­ferð­ina #Kjósum þar sem ungt fólk er hvatt til að nýta atkvæð­is­rétt sinn í for­seta­kosn­ing­unum næsta laug­ar­dag. Til að vekja athygli á her­ferð­inni fékkst lands­þekkt fólk til að koma fram í skemmti­legu mynd­bandi þar sem skila­boðin eru skýr: Hvert atkvæði skiptir máli.

Í nýlegum rann­sóknum hefur verið sýnt fram á að kjör­sókn ungs fólks hefur minnkað hraðar á und­an­förnum árum en meðal þeirra sem eldri eru. Séu nið­ur­stöður íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar á kosn­inga­hegðun Íslend­inga í síð­ustu fjórum Alþing­is­kosn­ingum skoð­að­ar, þá sést að yngstu ald­urs­hóp­arnir draga kjör­sókn­ar­hlut­fallið nið­ur.

Hvar kýs ég?

Þinn kjör­staður er að öllum lík­indum í næsta nágrenni. Hægt er að finna þinn kjör­stað og kjör­dæmi hér á kosn­ing.is. Ef þú kemst ekki á kjör­stað á laug­ar­dag­inn getur þú kosið utan kjör­fundar hjá sýslu­mönnum um allt land. Upp­lýs­ingar um hvar utan­kjör­fundur er hald­inn eru að finna á vef sýslu­manna hér.

Auglýsing

Færri kjósa í for­seta­kosn­ingum

Sé með­al­tal kjör­sóknar í kosn­ing­unum 2003, 2007, 2009 og 2013 skoðað sést að ald­urs­hóp­ur­inn 18-24 ára skilar sér síst á kjör­stað. Að með­al­tali svör­uðu 82,0 pró­sent á aldr­inum 18 til 24 ára sem tóku þátt í kosn­inga­rann­sókn­inni þessi ár að þau hefðu kosið í Alþing­is­kosn­ing­um. Miðað við fólk á 35 til 64 ára þar sem með­al­hlut­fall þeirra sem sögð­ust hafa kosið var 91,8 pró­sent.

Í síð­ustu for­seta­kosn­ingum hefur kjör­sókn verið mun dræm­ari en kjör­sókn í Alþing­is­kosn­ing­um. Í for­seta­kosn­ing­unum 2012 kusu aðeins 69,3 pró­sent þeirra sem voru á kjör­skrá, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unn­ar. Árið 2004 kusu enn færri eða 62,9 pró­sent. Til sam­an­burðar kusu 81,5 pró­sent í Alþing­is­kosn­ingum 2013 og enn fleiri árið 2009 eða 85,1 pró­sent kosn­inga­bærra manna.

Sam­starfs­verk­efni Kjarn­ans og Nútím­ans var sett af stað á sam­fé­lags­miðlum í dag og stendur fram að kosn­ingum með umræðu­merk­inu #Kjósum. Öllum er frjálst að nota mynd­bandið og umræðu­merkið #Kjósum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiRitstjórn Kjarnans
None