Þessi færsla er úr eldra greinasafni Kjarnans og gæti þess vegna birst furðulega.

Óeðlileg sönnunarbyrði kvenna

kristin-hrefna.jpg
Auglýsing

Í dag eru ell­efu dagar síðan Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra. Hanna Birna er fyrsta konan sem segir af sér ráð­herra­emb­ætti enda er það ekki mjög algengt hér á landi. Flestir sem ná sér í svona ráð­herra­stóla sitja á þeim eins og varð­hundar á gulli. Voff!

Það er eft­ir­sjá í Hönnu Birnu. Hún var fyrst kvenna til að bjóða sig fram til for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum og fram­ganga hennar var öðrum konum inn­blástur til að sækj­ast eftir áhrif­um. Hönnu Birnu voru hins vegar mis­lagðar hendur við val á aðstoð­ar­manni og í atburða­rás leka­máls­ins svo­kall­aða en ef ég sé fleiri stafi um það mál á net­inu æli ég pínu lít­ið.

Alltaf eitt­hvað að þeim...



Eftir að Hanna Birna sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra hafa margir velt því fyrir sér hver muni taka hennar stað í ráðu­neyt­inu. Í ljósi fyr­ir­heita for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins um jöfn hlut­föll karla og kvenna í rík­is­stjórn­inni verður að gera ráð fyrir að hann geri til­lögu um konu í emb­ætt­ið. Venju sam­kvæmt byrja menn þá að æmta og skræmta með yfir­lýs­ingum að það beri að velja hæf­asta ein­stak­ling­inn – rétt eins og þetta tvennt geti ekki farið sam­an.

„Það er því ekki nóg að vera jafn hæf, jafn dug­leg og jafn klár og strák­arn­ir. Við verðum helst að hafa reynslu af því starfi sem við sækj­umst eftir.“

Auglýsing

Það er eins og sönn­un­ar­byrðin hvíli á konum frekar en körlum í svona aðstæð­um. Alltaf þegar kona kemur til greina eða þegar ein­hver hvetur til þess að kona verði skipuð í til­tekið emb­ætti eða starf, þá byrjar kór­inn, karla­kór­inn sem er þó kynja­bland­að­ur. Það er alltaf eitt­hvað að þegar kona á í hlut; of ung, of göm­ul, of miklar skoð­an­ir, of reynslu­lít­il, of þetta, of hitt...

Ekki sömu kröfur gerðar til karla og kvenna



Stað­reyndin er sú að konur fá sjaldn­ast stöðu­hækkun nema þær hafi áður áorkað ein­hverju sam­bæri­legu eða sýnt og sannað að þær geti valdið starf­inu. Slíkar kröfur eru ekki gerðar til karla.

Sheryl Sand­berg segir í bók sinni Lean in, og vitnar þar í skýrslu frá McK­insey (2011), að karlar fái stöðu­hækkun vegna þess sem þeir gætu gert en konur vegna þess sem þær hafa nú þegar afrek­að. Þar hittir hún naglann á höf­uð­ið, eins og í raun í flestu sem hún hamrar á í bók­inni. Það er því ekki nóg að vera jafn hæf, jafn dug­leg og jafn klár og strák­arn­ir. Við verðum helst að hafa reynslu af því starfi sem við sækj­umst eft­ir.

„Ok, þú vilt sumsé kom­ast hærra upp stig­ann? Hef­urðu komið þar áður? Nú, ok, nei, þá er það ekki hægt, sorrý.“ Eðli­legt⸮

Fleiri kon­ur, takk



Okkur vantar fleiri fyr­ir­myndir fyrir ungar konur sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnu­mark­aðn­um. Ungar konur sem verða fyrir þungu höggi þegar þær átta sig á því að gler­þakið er ekki aðeins raun­veru­legt heldur nán­ast óbrjót­an­legt í fyrstu atrennu.

Okkur vantar fleiri konur til þess að stjórna sam­fé­lag­inu vegna þess að ég held í raun og veru að það verði betra ef við höfum fleiri konur í bíl­stjóra­sæt­unum – hvort sem það er í ráðu­neyt­um, stór­fyr­ir­tækjum eða bara í fleiri Toyota bif­reiðum á Miklu­braut­inni.

Halló Bjarni!



For­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins þarf að gera til­lögu um nýjan inn­an­rík­is­ráð­herra. Þegar hann bar sig­ur­orð af Hönnu Birnu á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins lagði hann þunga áherslu á það að hann væri af kyn­slóð sem liti á konur og karla sem jafn­ingja. Síðar gekk hann lengra og lof­aði jöfnum kynja­hlut­föllum í ráð­herra­liði Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Jæja, Bjarni. Var eitt­hvað að marka þetta eða voru þetta bara orðin tóm?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPistlar
None