RVK-stjórn veltur á hvort Samfylking nái bara mjög vondri kosningu

Kvikan með Þórunni og Þórði

Reykja­vík­ur­stjórn­in, sem virð­ist vera í kort­un­um, þarf að treysta á að Sam­fyk­ingin nái inn á þing, sem er alls ekk­ert víst. Þess vegna veltur til­veru­grund­völlur hennar á því hvort að Sam­fylk­ingin fái bara mjög vonda kosn­ingu, í stað þess að fá skelfi­lega. Miðað við Kosn­inga­spá Kjarn­ans eru ein­ungis 13 pró­sent líkur á að for­maður flokks­ins nái inn á þing og flestir odd­vita hans eru í mjög tæpri stöðu. Og getur flokkur sem nær for­manni sínum ekki inn á þing sest í rík­is­stjórn með góðri sam­visku? Geta aðrir stjórn­mála­flokkar í slíkri veitt því braut­ar­gengi?

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist svo lágt að annað hvort Vinstri græna eða Pírata virð­ist þurfa í sam­steypu­stjórn hans til að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eigi mögu­leika á að hald­ast við kjöt­katl­ana. Slíkt myndu sumir kalla „póli­tískan ómögu­leika“. Og hver verða áhrif verstu kosn­inga í sögu Sjálf­stæð­is­flokks­ins og eyði­merk­ur­göngu utan rík­is­stjórnar á stöðu Bjarna Bene­dikts­sonar sem for­manns?

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur sett fram óskilj­an­lega stefnu­skrá sem virð­ist hafa verið soðin saman á örfáum dögum eftir flokks­þingið og ekki í anda þeirra álykt­anna sem þarf voru sam­þykkt­ar. For­svars­menn flokks­ins eiga enda í stök­ustu vand­ræðum með að útskýra lof­orðin fyrir kjós­endum á vit­rænan hátt.

Svo er auð­vitað hræðslu­á­róð­ur­inn á yfir­snún­ingi þar sem veru­leik­anum er stillt upp svona: Viltu rík­is­stjórn sem breytir land­inu í Venes­ú­ela eða viltu hægri stjórn sem keyrir aðal­lega á rúss­neskri spill­ingu?

Þetta er á meðal þess sem farið er yfir í síð­ustu Kviku fyrir kosn­ingar með Þór­unni Elísa­betu Boga­dótt­ur, aðstoð­ar­rit­stjóra Kjarn­ans, og Þórði Snæ Júl­í­us­syni, rit­stjóri hans.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023