Í nýjasta þætti Radíó Eflingar ræðir Þórunn Hafstað við Eðvald Karl Eðvalds, félagsmann Eflingar til margra ára. Kalli, eins og hann er alltaf kallaður, fékk sína fyrstu vinnu 11 ára, en stendur nú á tímamótum. Hann er nýorðinn 67 ára og er að hætta að vinna. Kalli hefur komið sér upp einum fullkomnasta flughermi landsins heima hjá sér og í þættinum býður hann hlustendum á flug meðan hann ræðir um starfsferilinn í steypunni, frelsið í háloftunum og hvernig hann sjái fyrir sér að verja þeim tíma sem fylgir starfslokunum.
Radíó Efling er þáttur um félagsfólk Eflingar og allt sem viðkemur þeim. Undanfarin ár hefur fólk í Eflingu sagt frá lífi á lægstu launum, farið í verkföll og haldið uppi grunnþjónustu í heimsfaraldri. Í þessum þáttum verður rætt við félaga í Eflingu og ýmsa fulltrúa og fagfólk um hag verkafólks á Íslandi, sögur þeirra og líf í og utan vinnu. Umsjón með þættinum í dag hefur Þórunn Hafstað.
Tónlist og hljóð: www.freesound.com
Funky Moon eftir Stefan Kartenberg (CC BY 3.0), Retro piano loop eftir Setuniman (CC BY-NC 3.0), DaveJf (CC0 1.0), Kev_durr (CC BY 3.0), Navadaux (CC0 1.0), Setuniman (CC BY-NC 3.0).