Þjóðhættir – Matarnánd: Lífrænn, staðbundinn og menningararfsmatur

Matur er manns­ins megin og öll þurfum við að borða. Við komumst ekki af án matar og verjum gríð­ar­lega tíma á hverjum degi í að hugsa um mat, með­höndla mat og auð­vitað borða mat. Mat­ar­menn­ing og mat­ar­hættir eru frjótt og öfl­ugt rann­sókn­ar­svið innan þjóð­fræði, en breyt­ingar í sam­fé­lag­inu end­ur­spegl­ast meðal ann­ars í því hvernig við nálg­umst mat og hvernig og hvað við borð­u­m.  

Í þætt­inum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Jón Þór Pét­urs­son sem lauk dokt­ors­prófi í þjóð­fræði frá Háskóla Íslands í maí 2020. Rann­sókn Jóns Þórs ber yfir­skrift­ina Mat­ar­nánd: Myndun sam­banda innan mat­ar­virð­is­keðj­unn­ar. Í rann­sókn­inni fjallar Jón Þór um mat­ar­nánd í tengslum við stað­bund­inn mat, líf­rænan mat og menn­ing­ar­arfs­mat. Jón Þór fjallar um merk­ingu og tengsl sem fólk myndar við mat­inn, fram­leið­endur og milli­liði. Í þætt­inum segir Jón Þór frá ran­sókn­inni og hvernig gildum um mat er miðlað í gegnum frá­sagnir sem skapa um leið virði og sam­hengi í kringum mat­inn og neysl­una. Við ræðum einnig um íslenska skyrið sem áður var gert á heim­ilum en er nú verk­smiðju­farm­leitt og skil­greint sem menn­ing­ar­arfs­mat­ur. 

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um rann­sóknir og miðlun í þjóð­fræði. Sjón­unum er beint að fólki og hvaða merk­ingu það leggur í siði og venj­ur, hluti og umhverfi. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023