Þjóðhættir – Kvenskörungurinn Jóninna Sigurðardóttir

Í þætt­inum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Rann­veigu Karls­dóttur þjóð­fræð­ing og kenn­ara við Verk­mennta­skóla Akur­eyr­ar.

Rann­veig segir frá starf­semi Sögu­fé­lags Eyfirð­inga og tíma­riti félags­ins, sem nefn­ist Súl­ur. Að auki ræðir Rann­veig rann­sóknir sínar á Jóninnu Sig­urð­ar­dóttur (f. 1879 – d. 1962) mat­reiðslu­kenn­ara á Akur­eyri. Eftir að hafa numið meðal ann­ars hús­stjórn í Dan­mörku kom Jón­inna heim, ferð­að­ist um Norð­ur­land og kenndi mat­reiðslu við miklar vin­sæld­ir. Í kjöl­farið kom hún að stofnun hús­mæðra­skóla á Akur­eyri og varð fyrsti for­maður skóla­nefnd­ar. Hún rak einnig hótel og gaf út vin­sæla mat­reiðslu­bók þar sem hún lagði áherslu á að kynna nýjar upp­skriftir sem hún lærði erlend­is, nær­ing­ar­gildi og nýtni. Í þriðju útgáfu bók­ar­innar var tungu­málið henni hug­leikið en í bók­inni íslenskaði hún nán­ast öll hrá­efn­is­heiti. Jón­inna þótti mik­ill skör­ungur á sinni tíð en árið 1959 var Jón­inna sæmd ridd­ara­krossi hinnar íslensku fálka­orðu og nýlega var gata á Akur­eyri nefnd eftir henni.

Í upp­hafi þátt­ar­ins segir Rann­veig einnig frá námi sínu og störfum en aðal­starf hennar er íslensku­kennsla við Verk­mennta­skól­ann. Að auki kennir Rann­veig valá­fanga í þjóð­fræði sem stendur nem­endum skól­ans til boða en þar læra nem­endur að skoða sam­fé­lagið út frá þjóð­fræði­legum aðferðum og sjón­ar­horn­um.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa dr. Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir kenn­arar í þjóð­fræði við Háskóla Íslands.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023