Þjóðhættir – Álagablettir og bannhelgi

Í þætt­inum ræðir Vil­helm­ína við Jón Jóns­son þjóð­fræð­ing og verk­efn­is­stjóra hjá Rann­sókna­setri Háskóla Íslands á Ströndum – þjóð­fræði­stofu.

Í des­em­ber á síð­asta ári kom út bókin Álaga­blettir á Strönd­um. Höf­undar eru feðginin Jón og Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og er útgáfan sam­starf milli Rann­sókna­set­urs­ins og Sauð­fjár­set­urs á Strönd­um. Bókin er ríku­lega mynd­skreytt en Jón og Dag­rún gengu á alla þá staði sem fjallað er um í bók­inni og mynd­uðu álaga­bletti. Þau ræddu einnig við heima­fólk og stað­kunn­uga og söfn­uðu nýjum frá­sögnum af álaga­blettum sem enn lifa í munn­mæl­um. Jón segir frá til­urð bók­ar­innar og rann­sóknum á álaga­blettum á Strönd­um. Þá ræðir hann mik­il­vægi þess að rann­sóknum sé miðlað með aðgengi­legum hætti til almenn­ings.

Sögur af álaga­blettum hafa ákveðin ein­kenni. Í sög­unum kemur fram aðvörun um að ekki skuli gera eitt­hvað á álaga­blett­inum eða í námunda við hann. Ef brotið sé gegn því þá fylgir ein­hver refs­ing í kjöl­far­ið. Jón ræðir sög­urnar í víðu sam­hengi, um söfnun þjóð­fræði­efnis og hvernig frá­sagnir og þekk­ing er tengd lands­lagi. Jón segir einnig frá skelfi­legum atburðum sem áttu sér stað í Goð­dal árið 1948 þegar snjó­flóð féll og sex manns fór­ust. Í frétta­flutn­ingi um málið var strax farið að tengja atburð­ina við þjóð­sagna­minnið um álaga­blett á jörð­inni.

Í lokin segir Jón frá öðrum verk­efnum Rann­sókna­set­urs­ins, meðal ann­ars frá stórri rann­sókn á sér­stæðri dag­bók frá svæð­inu, rann­sóknum á þjóð­trú og verk­efni sem teng­ist gömlum ljós­mynd­um. Þá eru áhuga­verðar sýn­ingar framund­an. Í sumar mun opna ný sýn­ing um heim­sóknir hvíta­bjarna á Vest­fjörðum á Sauð­fjár­setr­in­u og einnig verður opnuð ný sýn­ing í kot­býli kuklar­ans í Bjarn­ar­firði, sem er hluti af Galdra­sýn­ing­unni á Strönd­um.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023