Þjóðhættir – Húmor og nálægð við dauðann

Greta Karen Frið­riks­dóttir lauk nýlega meist­ara­prófi í þjóð­fræði. Meist­ara­rit­gerð hennar nefn­ist Ef ég hlæ ekki að þessu þá mun ég gráta og ég get ekki grátið svona oft og fjallar um hvernig fólk sem starfar í návígi við dauð­ann notar húmor sem bjarg­ráð.

Í þætt­inum segir Greta frá rann­sókn­inni. Hún tók við­töl við fólk úr ýmsum starfs­stétt­um, eins og hjúkr­un­ar­fræð­inga, lög­reglu­fólk, presta, sjúkra­liða og starfs­fólk kirkju­garða, sem starfar í miklu návígi við dauð­ann og þarf að mæta fólki við við­kvæmar og erf­iðar aðstæð­ur. Við slíkar aðstæður er húmor senni­lega ekki það fyrsta sem fólki dettur fyrst í hug. Engu að síður lýstu við­mæl­endur Gretu því að þau gætu ekki sinnt störfum sínum ef ekki væri leyfi­legt að nota húmor. Þannig not­uðu við­mæl­endur húmor meðal ann­ars til að opna á erf­iðar sam­ræð­ur, fá útrás fyrir til­finn­ing­ar, aftengja sig erf­iðum aðstæðum og til að létta starfsand­ann. Þó kom fram að notkun húmors fylgja ákveðin skil­yrði en til að mynda er mik­il­vægt að sýna virð­ingu og þá á húmor­inn sér líka stund og stað.

Greta segir einnig frá því hvers vegna hún ákvað að læra þjóð­fræði, fyrri rann­sókn sinni á hrein­læti í torf­bæjum og við­komu sinni í afbrota­fræði.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023