Þjóðhættir – Fötlun í íslenskum þjóðsögum

Eva Þór­dís Eben­ez­ers­dóttir er dokt­or­snemi í þjóð­fræði við Háskóla Íslands. Rann­sókn hennar er hluti af stóru þver­fag­legu verk­efni innan háskól­ans sem ber yfir­skrift­ina Fötlun fyrir tíma fötl­unar (Disa­bility before disa­bility).

Nýlega kom út bókin Und­er­stand­ing Disa­bility throug­hout History: Interdisciplin­ary Per­spect­i­ves in Iceland from Settlem­ent to 1936, sem er hluti af fram­an­greindu rann­sókn­ar­verk­efni. Í bók­ina skrifar Eva Þór­dís kafla, ásamt Sól­veigu Ólafs­dóttur sagn­fræð­ingi, um Sig­ríði Bene­dikts­dótt­ur. Sig­ríð­ur, sem fékk við­ur­nefnið Stutta-­Sigga vegna þess hve lág­vaxin hún var, varð með tím­anum hálf­gerð þjóð­sagna­per­sóna. Sig­ríð­ur, sem fædd­ist árið 1815, átti afar erf­iða æsku og end­aði á flakki á full­orð­ins­aldri. Ýmsar heim­ildir eru til um lífs­hlaup Sig­ríð­ar, bæði opin­ber skjöl og þjóð­sög­ur. Í þætt­inum segir Eva Þór­dís frá Sig­ríði og lífi hennar og hvað saga hennar segir um við­horf til fólks með öðru­vísi lík­ama á 19. öld og fram á okkar daga.

Í þætt­inum segir Eva Þór­dís einnig frá því hvernig hún hefur fléttað saman fötl­un­ar­fræði og þjóð­fræði í gegnum þjóð­fræði­nám sitt, meðal ann­ars í rann­sóknum á umskipt­ingum og nú á þjóð­sagna­safni Jóns Árna­son­ar. Þar greinir Eva Þór­dís fjöl­breytt við­horf til fötl­unar og hvað sagn­irnar geta sagt okkur um sam­fé­lag fyrri tíma. Að auki ræðir Eva Þór­dís um áskor­anir við rann­sóknir á fötlun í for­tíð­inni sem meðal ann­ars tengj­ast því hvernig við tölum um og orðum hlut­ina.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023