Þjóðhættir – Siðspillandi ómenning: Um viðtökur jazztónlistar á Íslandi

Jazztón­list nam land hér á landi á 3. ára­tug síð­ustu ald­ar. Ekki voru allir á einu máli um ágæti þess­arar nýju tón­listar og þeirra dans­hreyf­inga sem henni fylgdu. Margir stungu niður penna til að vara við sið­spill­ing­unni og þeirri ógn sem slíkri tón­list fylgdi, ekki hvað síst fyrir óhörðnuð ung­menni. Þessi orð­ræða var ekki ein­skorðuð við Ísland heldur á hún sér hlið­stæðu víða um heim, meðal ann­ars í Ástr­al­íu.

Í þætt­inum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Ólaf Rastrick dós­ent í þjóð­fræði við Háskóla Íslands sem kennir meðal ann­ars nám­skeið um íslenska þjóð­hætti, ómenn­ingu og menn­ing­ar­arf. Rann­sóknir Ólafs hafa að miklu leyti verið á sviði menn­ing­ar­sögu og menn­ing­arpóli­tík­ur. Í þætt­inum segir Ólafur frá rann­sókn sinni á land­námi jazz hér á landi og þeim við­brögðum og við­tökum sem jazzinn fékk. Orð­ræðan um sið­spill­andi áhrif jazzins er sett í sam­hengi meðal ann­ars við sam­fé­lags­breyt­ingar í upp­hafi síð­ustu ald­ar, full­veldi Íslands og sköpun þjóð­ern­is.

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir dokt­or­snemar í þjóð­fræði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023