Leiðréttingin svokallaða hvergi nærri 150 milljörðum

Leiðrétting Bjarni Sigmundur
Auglýsing

Íslend­ingar hafa sam­tals greitt sér­eign­ar­sparnað upp á 12,4 millj­arða króna inn á hús­næð­is­lán sín á árunum 2014 og 2015 sem hluta af leið­rétt­ing­unni svoköll­uðu, eins og greint var frá á vef Kjarn­ans í dagRíkið og sveit­ar­fé­lög hafa veitt þeim hópi sem þetta hefur gert sam­tals 5,1 millj­arð króna í skatt­afslátt. 

Stjórn­völd vita ekki nákvæm­lega hversu margir eru að nýta sér úrræðið en sam­kvæmt grófu mati á fjölda­tölum sótt­ust um 35 þús­und manns eftir því. Hluti umsókn­anna eru þó ekki virkar, sam­kvæmt svari efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Guð­laugs Þórs Þórð­ar­son­ar.

Ef það fjölgar ekki hratt í hópi þeirra sem nýta sér úrræðið á næst­unni þá mun það verða fjarri því að skila þeim 70 millj­örðum króna í nið­ur­greiðslu á hús­næð­is­lánum sem kynntir voru í leið­rétt­ing­ar­kynn­ingum stjórn­valda.

Auglýsing

Þá var ráð fyrir því gert að heild­ar­um­fang hinnar svoköll­uðu leið­rétt­ingar yrði 150 millj­arðar króna. Það stóð stórum stöfum á glæru upp á vegg á bak við Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­son efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra þegar þeir kynntu aðgerð­ina.

Leiðréttingin.

Um 80 millj­arðar fóru í að lækka höf­uð­stól verð­tryggðra skulda þeirra sem áttu kost á aðgerð­inni, en 70 millj­arðar í við­bót áttu að koma í gegnum sér­eign­að­ar­sparnað fólks.

Nú lá fyrir frá upp­hafi að aðgerðin var val­kvæð. Spurn­ingin er hvort ekki hefði verið betra að minnka aðeins letrið á glær­unum þegar töl­urnar voru ann­ars veg­ar, og stækka letrið á fyr­ir­vör­un­um. Það hefði í það minnsta sent út heið­ar­legri skila­boð, heldur en sáust í kynn­ing­unni 10. nóv­em­ber í fyrra, eða fyrir nákvæm­lega ári síðan í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None