Ekki góður dagur fyrir ríkisstjórnina

ríkisstjórn
Auglýsing

Það má segja að dag­ur­inn í dag hafi ekki verið góður fyr­ir­ ­rík­is­stjórn Íslands. Hann hófst á því að Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, hellti sér yfir rík­is­stjórn­ina í grein í Frétta­blað­inu vegna þess á­stands sem ríkir í heil­brigð­is­kerfi þjóð­ar­inn­ar. Kári sagði það vera orð­ið lýðum ljóst að rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar myndi ekki sitja ­lengur en sem næmi þessu kjör­tíma­bili og ef fjár­laga­nefnd myndi ekki hækk­a fram­lög til Lands­spít­al­ans áður en að fjár­lög verða afgreidd myndu hann og nokkrir félagar hans safna 100 þús­und  und­ir­skriftum til að hvetja lands­menn til þess að kjósa aldrei aft­ur ­Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn. Gagn­rýni Kára hefur vakið gríð­ar­lega ­at­hygli og mik­ill fjöldi fólks hefur fylgt sér á bak­við hótun hans um að safna um­ræddum und­ir­skrift­um.

Höggið sem rík­is­stjórnin hefur fengið á sig vegna ákvörð­un­ar Út­lend­inga­stofn­unar um að senda fjöl­skyldu frá Albaníu úr landi síð­ast­liðn­a nótt var ekki síður minna. Mynd af hinum þriggja ára gamla Kevi, sem þjá­ist af lífs­hættu­leg­um hjarta­sjúk­dómi, hald­andi á tusku­dýri á leið út um úti­dyra­hurð­ina á heim­il­i ­fjöl­skyld­unnar í Barma­hlíð í nótt vakti upp gríð­ar­lega sterk við­brögð, enda verið að senda hann í lög­reglu­fylgd frá Íslandi til Alban­íu, sem rekur eitt versta heil­brigð­is­kerfi Evr­ópu. Þús­undir hafa skrifað undir und­ir­skrift­ar­lista um að Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra, sem ber ábyrgð á mála­flokki hæl­is­leit­enda, segi af sér vegna máls­ins. Meira að segja Jón Magn­ús­son, fyrrum ­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hefur talað mjög fyrir því að landa­mæri Íslands séu sem mest lok­uð, sagði í blogg­færslu í dag: „Þú rekur ekki veik börn í burtu, þú leys­ir ­vand­ann, og svo koma aðrir hlutir til greina.“

Auglýsing

Ofan á allt annað mættu full­trúar öryrkja og eldri borg­ara á fund fjár­laga­nefndar og settu fram kröfur um bætt kjör með miklum þunga, í ljósi bættrar stöðu rík­is­sjóðs og góð­ær­is. Krafa þeirra virð­ist njóta mik­ils ­stuðn­ings í sam­fé­lag­inu. Þá setti stjórn­sýslu- og eft­ir­lits­nefnd ofan í við for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar fyrir gagn­rýni þeirra á umboðs­mann Alþingis vegna leka­máls­ins og sjálf Vig­dís Hauks­dóttir þurfti að setja fram breyt­ing­ar­til­lögu við breyt­ing­ar­til­lögu fjár­laga­nefndar vegna fjár­laga­frum­varps um 1,2 millj­arða króna við­bót­ar­út­gjöld vegna launa kenn­ara sem gleymd­ist að reikna með í upp­haf­legu breyt­ing­ar­til­lög­unni.

Það blæs því ekki byr­lega hjá rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks þessa dag­anna, sem þó hefur skilað í höfn mörgum af sínum helstu stefnu­málum sem sett voru á odd­inn í síð­ustu kosn­ing­um. Samt mælist sam­an­lagt fylgi flokk­anna vel und­ir­ ­pró­sentum um langt skeið og lík­legt er að átökin um fjár­lögin og hæl­is­leit­end­urna muni ekki gera mikið til að hífa það upp.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None