Það var skemmtilegt að sjá myndirnar, á mbl.is, frá Aldrei fór ég suður hátíðinni á Ísafirði, þar sem Mugison stóð á sviðinu með Karlakór Vestfjarða. Hátíðin hefur vaxið jafnt og þétt og er orðin einn af hápunktum ársins í tónlistar- og menningarlífinu.
Hátíðin er líka til marks um hversu mikilvægt frumkvöðlastarf listamanna er fyrir svæði þar sem þeir starfa og láta gott af sér leiða. Þeir vökva rætur mannlífsins.
Feðgarnir Mugison og „Papamug“ eiga heiðurinn af upphafinu, þó margir leggi sitt af mörkum svo hátíðin geti orðið að veruleika ár hvert.
Á vefsíðu hátíðarinnar er saga upphafsins rakin, og er óhætt að segja að hún sé bæði skondin og skemmtileg. „Við feðgar vorum að drekka bjór í útlöndum sumarið 2003 og fórum þá að ímynda okkur stórhátíð á Ísafirði þar sem venjulegt fólk væri stjörnurnar og pop-stjörnurnar væru í algeru aukasæti. Okkur fannst svo frábært að sjá fyrir okkur plakat þar sem stærstu stafirnir væru "Dóri Hermans syngur swinging the blues away" og svo væru helstu meik stjörnur landsins í pínku litlu letri. Við feðgar sátum þarna í nokkra klukkutíma og viti menn við vorum búnir að hanna stærsta og flottasta festival í heimi. Henn er lýst svona: „Þegar rann af okkur feðgum héldum við samt áfram að spjalla um þessa hátíð og var það til marks um að hugmyndin væri kannski góð. Okkur langaði að bjóða nokkrum vinum úr bransanum vestur og jafnframt langaði okkur að sýna þeim af hverju við feðgar búum á mörkum hins byggilega heims, ástæðan er náttúrulega augljós, fólkið hérna fyrir vestan. Án þess að detta í einhvern þjóðernisrembing þá finnst okkur feðgum samt fólkið hérna með eindæmum skemmtilegt og opið, hér eru allir sérvitringar, allir hafa skoðanir á öllu og okkur fannst hreinlega kominn tími til að minna fólkið sjálft á þessa staðreynd og um leið sína vinum og kunningjum hversu skemmtilegt það getur verið hérna fyrir vestan.“
Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá þessum upphafshugmyndum þeirra feðga. Og þó. Þetta snýst ennþá um að fara vestur og skemmta sér vel. Hitta fólk og hlusta á góða tónlist.