Kostir og leyndir gallar

Davíð segir að nái hann kjöri muni hann gegna embætti forseta af myndarskap, sanngirni og yfirvegun, enda sé ekki margt sem geti sett hann úr skorðum.
Davíð segir að nái hann kjöri muni hann gegna embætti forseta af myndarskap, sanngirni og yfirvegun, enda sé ekki margt sem geti sett hann úr skorðum.
Auglýsing

Unga parið sem er nýbúið að ráð­ast í að kaupa sína fyrstu íbúð, kann­ast við áhyggj­urn­ar. Hjónin sem ákváðu að selja húsið sitt, minnka við sig og kaupa hent­uga íbúð, sem er sér­stak­lega ætluð þeim sem eru að ljúka starfsæv­inni, þekkja áhætt­una. 

Leyndir gallar geta koll­varpað öllum fjár­hags­á­ætl­un­um. Undir loft­klæðn­ing­unni grass­erar heilsu­spill­andi svepp­ur. Þakið reyn­ist ónýtt í óveðri, frá­gangur á vatns­lögnum er óvið­un­andi og þannig má lengi telja. Sumir hinna leyndu galla koma ekki í ljós fyrr en eftir mörg ár og oft á versta tíma.

Það er því rétt og skyn­sam­legt af unga par­inu og eldri hjón­un­um, að trúa ekki öllu eins og nýju neti, sem selj­and­inn ber á borð. Þau kynna sér sjálf ástand­ið, reyna að kom­ast að því hvort og þá hvaða gallar kunni að leyn­ast – oft með aðstoð sér­fræð­inga með reynslu og þekk­ingu. Þannig draga þau úr áhætt­unni og geta verið bæri­lega áhyggju­laus. 

Auglýsing

Sem for­seta­fram­bjóð­andi er ég að nokkru í svip­uðu hlut­verki og selj­andi fast­eign­ar. Þó er þar einn reg­in­mun­ur: 

Allir mínir gallar liggja fyrir – eng­inn er leynd­ur. Reynslan og þekk­ing­in, sem ég bý yfir eftir langa tíð, er opin bók sem er öllum aðgengi­leg.

Í aðdrag­anda kosn­ing­anna hef ég lagt áherslu á að breyta í nokkru inn­taki for­seta­emb­ætt­is­ins. Ég vil færa for­set­ann að fólk­inu og fólkið að for­set­anum – bjóða öllum lands­mönnum heim að Bessa­stöðum – opna Bessa­staði. Ég hef haldið því fram að nú sé tími til kom­inn að for­set­inn horfi heim, horfi inn á við og eyði færri dögum í ferða­lög til ann­arra landa. 

 Allir mínir gallar liggja fyrir – eng­inn er leynd­ur. Reynslan og þekk­ing­in, sem ég bý yfir eftir langa tíð, er opin bók sem er öllum aðgengi­leg. 

Á kom­andi árum verður for­set­inn að gæta að innviðum sam­fé­lags­ins og þá ekki síst hinum and­legu innvið­um, fást við óró­ann og ósættið sem hefur náð að grafa um sig í sam­fé­lag­inu. Um leið á for­set­inn að hafa kjark til að stöðva þöggun og brjóta niður umræðu­bann um til­tekna þætti í sam­fé­lag­inu. For­set­inn getur verið í far­ar­broddi þess að knýja á um umræðu um mik­il­væg þjóð­fé­lags­mál, sem leiðir til jákvæðra athafna í þágu lands og þjóð­ar. Um leið getur for­set­inn tryggt að raddir hinna hóf­sömu og þeirra sem standa höllum fæti, fái að heyr­ast og verði ekki kaf­færðar með hrópum hinna fáu sem hæst hafa. 

Verði ég kall­aður til þess verks að gegna emb­ætti for­seta Íslands, mun ég standa þá vakt af mynd­ar­skap, sann­girni, og af yfir­vegun enda er ekki margt sem getur sett mig úr skorð­um. Reynslan og þekk­ingin gerir mér kleift að takast á við flestar þær aðstæður sem upp geta kom­ið. 

Íslend­ingar vita hversu mik­il­vægt það er að for­set­inn hafi bæði burði og þor til að taka erf­iðar ákvarð­anir og verja hags­muni lands og þjóð­ar. Á ögur­stundu má ekki leyndur galli for­set­ans koma í ljós. 

 Á ögur­stundu má ekki leyndur galli for­set­ans koma í ljós. 

Hver sem nið­ur­staðan verður 25. júní, þegar gengið verður að kjör­borði, getum við öll tekið undir þessa fal­legu heit­streng­ingu Hann­esar Haf­stein:

Ef verð ég að manni, og veiti það sá,

sem vald hefur tíða og þjóða,

að eitt­hvað ég megni, sem lið má þér ljá,

þótt lítið ég hafi að bjóða,

þá legg ég, að föng­um, mitt líf við þitt mál,

hvern ljóð­staf, hvern blóð­dropa, hjarta og sál.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None