Margir fatlaðir og veikir eru í þeirri ömurlegu stöðu sem þau eru í vegna áhugaleysis stjórnvalda til að bæta úr því ástandi sem veldur stöðu okkar. Það er vegna misskiptingar á milli þjóðfélagshópa að við erum í kröppum dansi.
Það eru núverandi og stjórnvöld áður sem virðast nærast á því að gera sem flesta að þurfalingum, með aðgerðarleysi, með ákvörðunarfælni, með sinnuleysi um að standa við alþjóðlega samninga og að svíkja loforð sem gefin eru fyrir kosningar hverju sinni.
Nú vola menn um að flóttamenn fái mannsæmandi aðstoð þegar þau flýja hingað. „Þetta er betra en Íslendingar búa við“ segja sumir. Þau kjör eru miðuð við að flóttamennirnir geti lifað mannsæmandi lífi á Íslandinu góða. Eru þá kjör flóttamanna vandinn? Nei ekki að mínu mati. Miklu frekar er vandinn kjör almennings í þessum samanburði. Lausnin er ekki að setja flóttamenn í stöðu almennings heldur hitt að almenningur nái stöðu flóttamanna í okkar ágæta landi.
En það er krafa okkar Íslendinga að geta lifað í þessu frábæra landi. Að lifa er að mínu mati það að geta valið. Það að börnin mín geti stundað íþróttir og aðrar tómstundir. Að eiga fyrir fjölbreyttum næringarríkum mat alla daga. Að eiga fyrir lyfjum. Að geta leitað mér læknisaðstoðar. Að eiga fyrir skólabókum og öðru sem börn þurfa í skólann. Auk annars sem nánast telst eðlilegt fyrir flesta. Það eru mannréttindi.
Eitt er að fá það sem yfirvöld telja til lágmarksframfærslu og hitt er svo gleði yfirvalda við að hækka hlut notenda við allt og ekkert. Það hækkar hlutur flestra sjúklinga við lyf, að leita sér lækninga og síðast en ekki síst okkar hlutur við útvegun hjálpartækja alltaf lífsnauðsynlegra fyrir okkur sem viljum lifa. Auðvita gætum við lagst í bælið og lifað af, en þar skilur á milli míns og vilja yfirvalda. Ég vel lífið. Þau velja að ég tóri.
Minn draumur er og ósk um samvinnu við stjórnvöld að fækka þeim sem þurfa bætur svo betur megi gera við þá sem geta ekki annað en verið á bótum. Þar er fyrst og fremst að gera raunverulegt átak í vinnu fyrir alla, hlutastörfum verður að fjölga, endurmenntun verður að vera fjölbreitt og að veita okkur tækifæri til þátttöku í lífinu.
Innleiðum/lögleiðum samning Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Það er grunnurinn að svo mörgu. Meðal annars að við fáum tækifæri til sjálfstæðs lífs.
Ekki benda á okkur, bendið á stjórnvöld.
Lifið heil.
Höfundur er formaður MND félags Íslands.