Ekki benda á okkur!

Guðjón Sigurðsson
Auglýsing

Margir fatl­aðir og veikir eru í þeirri ömur­legu stöðu sem þau eru í vegna áhuga­leysis stjórn­valda til að bæta úr því ástandi sem veldur stöð­u okk­ar. Það er vegna mis­skipt­ingar á milli þjóð­fé­lags­hópa að við erum í kröpp­um d­ansi.

Það eru núver­andi og stjórn­völd áður sem virð­ast nær­ast á því að gera sem flesta að þurfaling­um, með aðgerð­ar­leysi, með ákvörð­un­ar­fælni, með­ sinnu­leysi um að standa við alþjóð­lega samn­inga og að svíkja lof­orð sem gef­in eru fyrir kosn­ingar hverju sinni.

Nú vola menn um að flótta­menn fái mann­sæm­andi aðstoð þeg­ar þau flýja hing­að. „Þetta er betra en Íslend­ingar búa við“ segja sum­ir. Þau kjör eru miðuð við að flótta­menn­irnir geti lifað mann­sæm­andi lífi á Ísland­inu góða. Eru þá kjör flótta­manna vand­inn? Nei ekki að mínu mati. Miklu frekar er vand­inn ­kjör almenn­ings í þessum sam­an­burði. Lausnin er ekki að setja flótta­menn í stöðu almenn­ings heldur hitt að almenn­ingur nái stöðu flótta­manna í okkar ágæta landi.

Auglýsing

En það er krafa okkar Íslend­inga að geta lifað í þessu frá­bæra landi. Að lifa er að mínu mati það að geta val­ið. Það að börnin mín get­i ­stundað íþróttir og aðrar tóm­stund­ir. Að eiga fyrir fjöl­breyttum nær­ing­ar­rík­um ­mat alla daga. Að eiga fyrir lyfj­um. Að geta leitað mér lækn­is­að­stoð­ar. Að eiga ­fyrir  skóla­bókum og öðru sem börn þurfa í skól­ann. Auk ann­ars sem nán­ast telst eðli­legt fyrir flesta. Það eru ­mann­rétt­indi.

Eitt er að fá það sem yfir­völd telja til lág­marks­fram­færslu og hitt er svo gleði yfir­valda við að hækka hlut not­enda við allt og ekk­ert. Það hækkar hlutur flestra sjúk­linga við lyf, að leita sér lækn­inga og síð­ast en ekki síst okkar hlutur við útvegun hjálp­ar­tækja alltaf lífs­nauð­syn­legra fyr­ir­ okkur sem viljum lifa. Auð­vita gætum við lagst í bælið og lifað af, en þar skilur á milli míns og vilja yfir­valda. Ég vel líf­ið. Þau velja að ég tóri.

Minn draumur er og ósk um sam­vinnu við stjórn­völd að fækk­a þeim sem þurfa bætur svo betur megi gera við þá sem geta ekki annað en verið á bót­um. Þar er fyrst og fremst að gera raun­veru­legt átak í vinnu fyrir alla, hluta­störfum verður að fjölga, end­ur­menntun verður að vera fjöl­breitt og að veita okkur tæki­færi til þátt­töku í líf­inu.

Inn­leið­u­m/lög­leiðum samn­ing Sam­ein­uðu Þjóð­anna um rétt­ind­i fatl­aðs fólks. Það er grunn­ur­inn að svo mörgu. Meðal ann­ars að við fáum tæki­færi til sjálf­stæðs lífs.

Ekki benda á okk­ur, bendið á stjórn­völd.

Lifið heil.



Höf­undur er for­maður MND félags Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None