Hafnarfjörður fyrir fjölskyldufólk

Hafnarfjörður
Auglýsing

Frá því Björt fram­tíð tók sæti í meiri­hluta bæj­ar­stjórnar í Hafn­ar­firði hefur bragur bæj­ar­fé­lags­ins breyst til muna. Lögð er mikil áhersla á að koma til móts við ­fjöl­skyldu­fólk, gera bæinn mun meira aðlað­andi en á sama tíma að taka skyn­sam­leg­ar á­kvarð­anir í fjár­málum bæj­ar­ins.

Að reka bæj­ar­fé­lag er svo­lítið eins og að reka fjöl­skyldu, það getur verið flók­ið, per­sónu­legt og þarf að taka til­lit til margra ólíkra ein­stak­linga. Þegar taka þarf erf­ið­ar­ á­kvarð­an­ir, með áherslur á það fjár­magn sem til er þá eru þessar ákvarð­anir oft ekki til þess fallnar að gleðja alla en lögð er áhersla á að þær séu þannig úr ­garði gerðar að meiri­hluti bæj­ar­búa finni að verið sé að vinna í þeirra þágu.

Þann 1. jan­úar árið 2016 ­bjuggu 28.189 ein­stak­lingar á öllum aldri í Hafn­ar­firði, af þessum fjölda eru 7.754 börn á aldr­inum 0 til 18 ára, sem gera um þriðj­ung bæj­ar­búa. Börnin eru jú fram­tíð­in. Það eru til ýmsar leiðir til þess að styrkja stoð­ir fram­tíð­ar­innar og koma til móts við fjöl­skyldu­fólk í firð­inum okkar fagra. Mest­i ­sig­ur­inn á síð­ustu árum tel ég hafi unn­ist nú nýverið þegar starfs­hópur um gjald­skrár fékk í gegn til­lögur sínar um breyt­ingu á systk­ina­af­slætti þvert á skóla­stig úr 30% fyrir ann­að, 50% fyrir þriðja og 100% fyrir fjórða  í 50% fyrir barn númer tvö, 75% fyrir þriðja og áfram 100% fyrir fjórða barn. Þetta er kjara­bót sem kemur sér vel fyr­ir­ hafn­firskar fjöl­skyldur og tekur þessi breyt­ing gildi þann 1. sept­em­ber 2016. Einnig var tekið stór skref síð­asta haust þegar ákveðið var að hækk­a ­nið­ur­greiðslur til dag­for­eldra, hækka ekki gjald­skrár leik­skóla (annað árið í röð) og frí­stunda­heim­ila ásamt því að lækka inn­töku­aldur í leik­skóla niður í 18 ­mán­uði. Ekki má heldur gleyma fræðslu­sjóðnum sem settur var á lagg­irnar svo ­starfs­fólk leik- og grunn­skóla Hafn­ar­fjarðar gæti menntað sig á sínu sviði, því ­gott starfs­fólk er gulli betra.

Auglýsing

Einnig hafa íþrótta- og frí­stunda­mál barna bæj­ar­ins verið í milli end­ur­skoð­un, nú hafa flest­öll ­í­þrótta­fé­lög bæj­ar­ins skrifað undir nýja rekstr­ar- og þjón­ustu­samn­inga við bæ­inn þar sem áhersla er á gagn­sæi og sam­starf milli allra aðila. Tryggja verður jafnan aðgang allra barna að frí­stunda­starfi og lagði starfs­hóp­ur­inn um gjald­skrár einnig til að frí­stunda­styrkur fyrir hvert barn sem sæk­ist eft­ir honum hækki til muna eða í 3000 kr á mán­uði. Hækk­unin er tölu­verð eða  úr 1.700 kr á mán­uði fyrir 6–12 ára og 2.205 kr. á mán­uði fyrir 13–16 ára. Er þetta fyrsta hækk­unin á frí­stunda­styrkn­um ­síðan hann var settur á lagg­irnar árið 2007. Jafn­framt verða ald­urs­mörk um frí­stunda­styrk hækkuð um tvö ár, frá 6 ára til 18 ára ald­urs í stað 16 ára. ­Meg­in­mark­mið þess­ara breyt­inga á frí­stunda­styrknum er að tryggja jafnan aðgang allra barna og auka þátt­töku þeirra í skipu­lögðu tóm­stunda­starfi. Einnig lögð­u ­full­trúar Bjartar fram­tíðar í starfs­hópnum til að fræðslu­ráð end­ur­skoð­i ­fyr­ir­komu­lag frí­stunda­styrkja með það að leið­ar­ljósi að mæta ólíkum þörf­um ­barna og ung­menna bæj­ar­ins. Þá verði sér­stak­lega horft til þess hvort ekki sé orðið tíma­bært að víkka út skil­yrðin fyrir frí­stunda­styrk, börn bæj­ar­ins get­i ­stundað hverja þá tóm­stund sem þau lystir og nýtt styrk­inn sinn til með­al­ ann­ars skap­andi greina.

Það má ávallt bæta um betur og tel ég að unnið sé af því að rétta stöðu fjöl­skyldu­fólks í Hafn­ar­firði á einn eða annan hátt, sumt er hægt að gera strax á meðan annað þarf að fá tíma og tæki­færi til þess að koma í fram­kvæmd. Ég tel að með fyr­ir­greindum breyt­ingum hafi hag fjöl­skyldu­fólks verið sinnt til muna. Bær­inn er allur að styrkj­ast og vaxa í rétta átt, sýn­ir það sig meðal ann­ars í hækkun á fast­eigna­mati innan bæj­ar­lín­unn­ar, bæði hef­ur fast­eigna­mat í Hafn­ar­firði hækkað sem og í flestum hverfum Hafn­ar­fjarð­ar. Vor­u hækk­anir frá 7% og upp í 11% fyrir ein­staka hverfi. Þetta sýnir og sannar að Hafn­ar­fjörður er á góðri leið með að verða einn besti bær­inn á land­inu til að ­búa í. Margar hendur geta unnið gott verk. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None