Framámenn í Kennarasambandi Íslands láku upplýsingum til fjölmiðla

Helga Dögg Sverrisdóttir telur að valdníðsla hafi átt sér stað á ný yfirstaðnu þingi Kennarasambands Íslands.

Auglýsing

Á nýaf­stöðnu þingi Kenn­ara­sam­bands Íslands reyndu for­ystu­sauðir Kenn­ara­sam­bands­ins að kúga lýð­ræðið innan sam­tak­anna. Þeim tókst það ekki. Þökk sé þing­full­trú­um.

En hvernig málið bar að er í alla staði óeðli­legt. Eins og gengur og ger­ist þurfa þing­full­trúar athygl­is­hlé því mis­jafnt er hve frum­mæl­endur ná til fólks. Allt í einu ýtir sessu­nautur við mér og spyr „veist þú eitt­hvað um þetta?“ og sýnir mér frétt á mbl.is, sem birt­ist kl. 10:56 þann 12. apr­íl, um að taka eigi áskorun til afgreiðslu á þing­inu, sem ég sat, eftir hádegi. Ég gapti. Þetta er málið sem verð­andi for­maður skrif­aði um á Stund­inni, sem ég hélt að væri hug­ar­órar í mann­in­um, hugs­aði ég. Af hverju, jú því lýð­ræðið hafði tal­að.

Það sem situr eftir hjá mér, hvernig geta fjöl­miðlar fengið upp­lýs­ingar um dag­skrár­lið sem verður eftir hádegi og birt er fyrir hádegi opin­ber­lega. Og ekki nóg með það, Félag fram­halds­skóla tísti kl.13:56 og tístið hljómar svo „Áskorun kemur fram á þing­inu um að til­von­andi for­maður KÍ end­ur­nýi umboð sitt #metoo #thing­ki2018“ Gera má ráð fyrir að for­maður Félags fram­halds­skóla­kenn­ara tísti fyrir hönd félags­manna sinna. Skammar­legt.

Auglýsing
Það er ljóst að framá­menn í Kenn­ara­sam­bandi Íslands komu upp­lýs­ingum til fjöl­miðla áður en þing­full­trúar fengu upp­lýs­ingar um mál­ið. Áður en málið kom á dag­skrá og án þess að umræða færi fram. Hef bara aldrei kynnst öðru eins sið­leysi af hálfu for­ystu­manna stétt­ar­fé­laga. Þetta er lít­ils­virð­ing við kjörna full­trúa og félags­menn.

Vegna þessa trún­að­ar­brests af hálfu for­ystu­sauð­anna voru fjöl­miðlar eins og gráir kettir í kringum þingið til að fá nið­ur­stöðu úr mál­inu. Þeim  var brugðið að þing­full­trúar mætti þessu sið­leysi og svör­uðu kon­unum fullum hálsi. Lýð­ræðið hafði talað og tal­aði á þing­inu.

Mér er óskilj­an­legt hvernig for­menn, vara­for­menn, stjórn­ar­menn og aðrir sem sinna trún­að­ar­störfum fyrir sam­tökin geti komið svona fram, trún­að­ar­brest­ur. Við í félagi grunn­skóla­kenn­ara þurfum ekki að hafa áhyggjur af áfram­hald­andi setu for­yst­unnar því skipt verður á aðal­fundi um miðjan maí.

Því miður sýndu fjöl­miðlar for­ystu­sauði þeirra sem báru upp áskor­un­ina áhuga og það sem hún sagði end­ur­speglar ekki á nokkurn hátt skoðun allra félaga innan Kenn­ara­sam­bands Íslands. Kenn­ar­ar, hvaða nafni sem þeir nefnast, kusu lýð­ræð­is­lega um nýjan for­mann og ekk­ert gat og getur breytt því.

Mér þykir ámæl­is­vert að hópur kvenna í æðstu stöðum innan KÍ gangi fram með þessum hætti og leki upp­lýs­ingum og í reynd búnar að ákveða og til­kynna um atkvæða­greiðslu. Þetta er trún­að­ar­brot að mínu mati, en það er verk lög­fræð­ings KÍ að skera úr um það, því ég minni á að lög­lega kjörnir full­trúar vissu ekk­ert um mál­ið, kom eins og skratt­inn úr sauð­ar­leggn­um.

Með þeim tveimur greinum sem ég hef skrifað um málið hef ég komið atburða­rásinni og mínum skoð­unum á fram­færi. Ég taldi það nauð­syn­legt svo að kenn­arar fái inn­sýn í þá vald­níðslu sem átti sér stað á 7. þingi Kenn­ara­sam­bands Íslands.

Mér var gróf­lega mis­boð­ið!

Höf­undur er grunn­skóla­kenn­ari og þing­full­trúi FG.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar