Að lofa að svíkja!

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, spyr hvort það sé til of mikils ætlast að kjósendur og almennir borgarar geri þá kröfu um að stjórnmálamenn taki ábyrgð á gjörðum sínum og aðgerðarleysi og sýni langþráða ábyrgð.

Auglýsing

Í aðdrag­anda kosn­inga þurfa kjós­endur að velja á milli flokka sem lofa öllu fögru. Flokkar sem kúra hvað þétt­ast að vöngum sér­hags­muna eru í fjár­hags­legri stöðu til að yfir­taka umræð­una og stjórna henni og ná bestum árangri.

Öllu fögru er lofað svo er allt annað gert. Þetta á við um alla flokka sem setið hafa í rík­is­stjórn síð­asta ára­tug og nær lík­lega lengra aftur en menn muna.

Fræg­ust er skjald­borgin um heim­ilin sem var skjald­borg um fjár­mála­kerf­ið.

Auglýsing

Hvað er að frétta í dag? Er eitt­hvað meira að marka stjórn­málin eða eru stjórn­mála­menn lítið annað en sömu lýð­skrumar­arnir og áður, sem ljúga sig til valda eða missa kjark og hug­sjónir um leið og val um æðstu stöður kom­ast í tal? Að geta svo aldrei verið sam­mála um annað en að gera ekki neitt?

Tökum dæmi um nokkur mál sem ærðu kjós­endur fyrir síð­ustu kosn­ingar og málin sem rík­is­stjórnin setur í algjöran for­gang. Gjald­frjáls heil­brigð­is­þjón­usta. Sjúk­lingar liggja á göngum eða inni á kló­settum á meðan starfs­fólk örmagn­ast undan álagi. Fólk hefur ekki efni á að veikj­ast á meðan haldnar eru rán­dýrar full­veld­is­há­tíðir sem engin bað um eða skil­ur. Það átti að bæta hag öryrkja og afnema skerð­ingar en við fáum þriðja orku­pakk­ann.

Það átti að stöðva rányrkju kerf­is­ins á upp­söfn­uðum líf­eyri eldri borg­ara en fáum sér­stakar hækk­anir Kjara­ráðs og hækkun fram­laga til stjórn­mála­flokka.

Það átti að styrkja inn­viði en í stað­inn er talað um vega­tolla og áfram­hald­andi einka­væð­ingu.

Það átti að lag­færa veg­ina en ekki kjör æðstu emb­ætt­is­manna.

Það átti að auka gagn­sæi en ekki tekjur Alþing­is­manna í gegnum ferða­kostnað og akst­ur­s­pen­inga-skandal.

Það átti að lækka skatta á þá lægst laun­uðu og styrkja grunn­stoðir en veiði­gjöld voru lækk­uð.

Við áttum að sjá hvít­bók um fjár­mála­kerfið en fengum hvít­þvott.

Lækkun vaxta og aðgerðir er snúa að verð­trygg­ingu en fáum þjóð­ar­sjóð.

Nið­ur­skurður til með­ferð­ar­stofn­ana á meðan met er slegið í skýrslu­kaupum af ómark­tækum dek­ur­kálfum stjórn­mála­el­ít­unnar og aðstoð­ar­mönnum fjölg­að.

Traust á Alþingi átti að stór­auka en við fáum Klaust­ur-skandal og hrossa­kaup í beinni, vafa­sama við­skipta­hætti æðstu ráða­manna og yfir­hylm­ingu á kyn­ferð­is­legri áreitni kjör­inna full­trúa.

Fram­úr­keyrsla á opin­berum fram­kvæmdum hefur sjaldan verið meiri og standa þar Bragga­málið og Vaðla­heið­ar­göng upp úr. Hið síð­ar­nefnda hefur sett ný við­mið á kjör­dæma­poti og með­ferð á fjár­munum hins opin­bera. Að ég tali nú ekki um prí­vat jarð­göng fyrir stór­iðju á Bakka sem ólík­legt er þjóðin hefði kosið að fara í, hefði hún ein­hverju ráð­ið.

Nú kepp­ast skrúð­pennar hags­muna­afla við að níða niður nýja verka­lýðs­for­ystu og beina sjónum sínum að kröfu­gerð henn­ar. Kröfum sem á margan hátt snúa að því að stjórn­málin standi við gefin lof­orð. Er til of mik­ils ætl­ast að kjós­endur og almennir borg­arar geri þá kröfu um að stjórn­mála­menn taki ábyrgð á gjörðum sínum og aðgerð­ar­leysi og sýni lang­þráða ábyrgð?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit