Eftirlitsleysi borgarstjóra frumorsök í Braggamálinu

Auglýsing



Í skýrslu Innri end­ur­skoð­unar Mat á innra eft­ir­liti hjá Reykja­vík­ur­borg – Maí 2011 segir um ábyrgð borg­ar­stjóra: „Borg­ar­stjóri ber á­byrgð á upp­bygg­ingu innra eft­ir­lits hjá borg­inni í heild sinni gagn­vart ­borg­ar­ráð­i.“



Auglýsing

Borg­ar­stjóri ber sem sagt ábyrgð á að innra eft­ir­lit og verk­ferlar séu í lagi. Ljóst er að þarna brást Borg­ar­stjóri algjör­lega skyld­u sinni. Því árið 2015 kom út skýrsla frá Innri End­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar sem var­aði við brota­lömum þeim sem urðu til þess að Bragga­fram­kvæmdin fór úr ­bönd­un­um:



„Á árinu 2015 gerði Innri end­ur­skoðun úttekt á skrif­stofu ­eigna og atvinnu­þró­unar og skil­aði skýrslu þar sem settar voru fram ábend­ing­ar um atriði sem betur mættu fara. Enn hafa ekki verið gerðar full­nægj­andi úrbæt­ur ­vegna ábend­ing­anna. Innri end­ur­skoðun telur að ef úrbætur hefðu verið gerðar og verk­lag lag­fært í sam­ræmi við ábend­ing­arnar hefði verk­efnið að Naut­hóls­vegi 100 ekki farið í þann far­veg sem það gerð­i.“



Stjórn­enda­keðja brotin – Aukin ábyrgð Borg­ar­stjóra



Borg­ar­stjóri virð­ist hafa tekið að sér að vera næst­i ­yf­ir­maður skrif­stofu Eigna og Atvinnu­þró­un­ar. Þá hlýtur ábyrgð hans að skoðast í sam­ræmi við það:



„Sam­kvæmt skipu­riti er borg­ar­rit­ari næsti yfir­maður skrif­stofu eigna og at­vinnu­þró­unar en þó hafa mál skrif­stof­unnar ekki verið á hans borði held­ur farið beint til borg­ar­stjóra og því hefur ekki verið unnið sam­kvæmt réttri ­um­boðskeðju. Mikil sam­skipti hafa verið milli fyrrum skrif­stofu­stjóra og ­borg­ar­stjóra allt frá stofnun skrif­stofu eigna og atvinnu­þró­un­ar,[..]“

Þá má ekki gleyma því heldur að þessi skrif­stofa var sett á lagg­irnar að til­lögu fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra Jóns Gnarr, þegar hann og Dagur unnu náið saman að því að stjórna borg­inni árið 2012.



„Það er ekki hlut­verk borg­ar­rit­ara né borg­ar­stjóra að hafa bein­línis eft­ir­lit með dag­legum verk­efnum SEA, það er hlut­verk ­skrif­stofu­stjór­ans. Þeirra eft­ir­lits­skylda felst í því að kalla eft­ir ­upp­lýs­ingum og skýrsl­u­m.“



Ljóst er að bæði borg­ar­stjóri og borg­ar­rit­ari brugðust þess­ari skyldu sinni. Því þeir ósk­uðu aldrei eftir neinum upp­lýs­ingum um mál­ið. ­Eft­ir­lits­skylda þýðir nefni­lega ekki að menn eigi að sitja með hendur í skaut­i og bíða eftir upp­lýs­ing­un­um. Ver­andi síðan stikk­frí ef þær ber­ast aldrei:



„Borg­ar­rit­ari og borg­ar­stjóri hafa stað­fest við Inn­ri end­ur­skoðun að þeir hafi ekki fengið neinar upp­lýs­ingar frá SEA varð­and­i verk­efn­ið.“

Enda hefur ekki komið fram að þeir hafi óskað eftir neinum upp­lýs­ing­um. Þrátt fyrir skyldur sínar um slíkt.



„Það að fyrr­ver­andi skrif­stofu­stjóri SEA upp­lýsti ekki sína ­yf­ir­menn um stöðu mála leysir þá ekki undan þeirri ábyrgð að hafa heild­ar­sýn ­yfir rekstur ein­ing­ar­innar og verk­efni henn­ar. Borg­ar­rit­ara ber sem yfir­mann­i ­skrif­stofu­stjóra SEA að fylgj­ast með því sem er að ger­ast þar innan veggja með­ því að kalla eftir skýrslum um fram­vindu mála.“



Í skýrslu IE er rakið hvernig skrif­stofu­stjóri SEA hafi í raun farið fram hjá Borg­ar­rit­ara með öll sín mál og verið í miklum sam­skipt­u­m beint við Borg­ar­stjóra:



„Borg­ar­stjóri, sem starf­aði sam­kvæmt því sem að ofan er ­ritað sem næsti yfir­maður skrif­stofu­stjóra SEA, hefði átt að gegna þeirri ­stjórn­un­ar­legu skyldu að fara yfir veru­leg frá­vik í verk­efnum skrif­stof­unn­ar. [..] Draga má þann lær­dóm af end­ur­gerð bygg­inga við Naut­hóls­veg 100 að ­skýrslu­gjöf um fram­vindu fjár­fest­ing­ar­á­ætl­unar þurfi að veita fyllri mynd af ­stöðu verka og að það eigi sér stað umræður um frá­vik sem leiði til full­nægj­and­i við­bragða. Það er hlut­verk borg­ar­rit­ara og eftir atvikum borg­ar­stjóra að kalla eftir því að svo verð­i.“



Mis­ferslis­á­hætta mikil vegna skorts á eft­ir­liti



„Al­mennt eykst mis­ferl­is­á­hætta í beinu hlut­falli við minnk­andi eft­ir­lit, minna gagn­sæi, minna aðhald stjórn­enda og þegar reglum er ekki fram­fylgt. Nið­ur­stöður Innri end­ur­skoð­unar benda ein­dregið til þess að ­kostn­að­ar­eft­ir­liti hafi verið ábóta­vant og hlítni við lög, inn­kaupa­regl­ur, ­starfs­lýs­ing­ar, verk­ferla, ábyrgð og for­svar hafi ekki verið nægj­an­leg.“



Ljóst er að eft­ir­lits­leysi af hálfu borg­ar­stjóra ásamt hundsun við­var­ana er ein af frumorsökum þess að Bragga­verk­efnið fór úr bönd­un­um. Ef það var þá nokkru sinni í neinum bönd­um. Því miður eru „bragga­verk­efn­in“ fleiri. Má þar nefna Hlemm Mat­höll, Sund­höll Reykja­vík­ur, Íra­bakka og Vest­ur­bæj­ar­skóla. En öll þessi verk­efni eru nú til skoð­unar hjá Innri End­ur­skoðun borg­ar­innar.



(All­ar til­vitn­anir í grein­inni eru teknar úr skýrslu Innri End­ur­skoð­unar um Naut­hóls­veg 100, nema annað sé tekið fram.)



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None