Búin að segja fyrirgefðu

Soffía Sigurðardóttir segir að yfirlýsing um iðrun og yfirbót, sé hvorki iðrun né yfirbót nema henni fylgi breytt hegðun. Að hætt sé að haga sér á þann hátt sem maður segist iðrast og sýni í verki hvað hann gerir til að bæta fyrir miskann.

Auglýsing

Við kunnum mannasiði.

Við þekkjum mun­inn á réttu og röngu, bæði á því sem okkur sjálfum finnst rétt og rangt og því sem við vitum að sam­fé­lag­inu þykir rétt og rangt, en þau við­horf fara ekki alltaf sam­an.

Oft gerir fólk eitt­hvað sem brýtur gegn betri vit­und þess sjálfs, slugsar þegar á að drífa sig, keyrir of hratt, sýnir til­lits­leysi, hreytir ónotum í aðra, dæmir ómak­lega, svindlar bara smá eða stel­ur. Oft veit maður bara af þessu sjálf­ur, en stundum kemst upp um mann. Það er vont þegar kemst upp um mann, því þá lendir maður í vand­ræðum í sam­skiptum við aðra, fær umvand­an­ir, for­dæm­ingu, missir traust og þar með þá aðstöðu sem fyrra traust hafði gef­ið, er kraf­inn um bætur og alls­konar óþæg­indi.

Auglýsing

Hvað á þá að gera? Þá er nú gott að kunna mannasiði: Segj­ast sjá eftir þessu og að þetta hafi verið voða­legt dóm­greind­ar­leysi og að biðj­ast fyr­ir­gefn­ing­ar! Eftir þessa ræðu á allt að verða gott aft­ur, til þess var jú ræðan flutt.

Eða hvað? Hverju sérðu eft­ir, því sem þú gerð­ir, eða því að hafa gert það á þann hátt að upp um þig kom­st? Hvernig eiga aðrir að sjá hvort er?

Yfir­lýs­ing um iðrun og yfir­bót, er hvorki iðrun né yfir­bót nema henni fylgi breytt hegð­un, að hætt sé að haga sér á þann hátt sem maður seg­ist iðr­ast og sýni í verki hvað hann gerir til að bæta fyrir miskann. Fram að því eru orðin í besta falli fyr­ir­heit, sem á svo eftir að sýna hvort staðið verði við. 

Nú lýsir maður því yfir að hann sjái mikið eftir niðr­andi ummælum eða óvið­ur­kvæmi­legri hegð­un, telji þau ummæli/hegðun vera sjálfum sér til vansa og ómak­leg gagn­vart þeim sem þau beindust að, biðst fyr­ir­gefn­ingar hjá bæði þeim ein­stak­lingum sem hann braut gegn og öðrum þeim sem hann rauf traust hjá með fram­komu sinni.

Hvernig veist þú að hann meinar þetta allt í alvöru? Það gerir þú með því að skoða breytni hans eftir yfir­lýs­ing­arnar um iðr­un­ina.

Næst sérð þú til hans þar sem hann lýsir því yfir að þetta hafi í raun verið mein­laust hjal þar til ein­hver sagði frá því og skað­inn því ekki skeð fyrr en upp­ljóstrað var og sé þetta sé því þeim fjöl­miðlum að kenna sem birtu upp­ljóstr­un­ina. Eða þú heyrir hann lýsa því yfir að hann sé í fyrsta lagi búinn að við­ur­kenna og biðj­ast afsök­unar á þeim yfir­sjónum sem eru til skjal­fest­ar, í öðru lagi sé hann sak­laus af þeim sem engar skrif­legar sann­anir eru um, í þriðja lagi sé hann sjálfur fórn­ar­lamb hóps fólks sem hafi tekið upp á að hata hann.

Þar næst sérð þú hann reyna að klekkja á upp­ljóstr­ar­an­um, bera út allskyns sögur um það að upp­ljóstr­ar­inn hafi verið útsend­ari ann­ar­legra afla, kæra upp­ljóstr­ar­ann til yfir­valda og krefj­ast refs­inga yfir hon­um. Nú eða lest eftir hann lýs­ingar á því hve ásak­andi sé klikk og hve stuðn­ings­menn ásak­enda séu mikil fól og fúl­menni, sam­an­safn öfga­sinna og afleitra stjórn­mála­manna. 

Er þetta það sem þú álítur iðr­un? Finnst þér þetta vera yfir­bót? Átt þú núna að fyr­ir­gefa?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar