Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru fíllinn í herberginu

Auglýsing

Margt er til umfjöll­unar í umræð­unni þegar kjara­við­ræður standa yfir. Meðal þess sem umræðan hverf­ist um eru skoð­anir fólks um hverjar séu skyn­sam­leg­ustu kjara­bæt­urnar og hver það sé sem hafi skyldum að gegna í því að höggva á hnút­inn í þeim efn­um. Þegar allt kemur til alls skiptir auk­inn kaup­máttur hvað mestu máli. Það er hin raun­veru­lega kjara­bót. Von­andi getum við öll verið sam­mála um það.

Allir þurfa þak yfir höf­uð­ið. Þannig eru hús­næð­is­málin t.d. gott dæmi um inn­legg stjórn­valda inn í kjara­við­ræð­urnar enda mála­flokk­ur­inn grunn­for­senda vel­ferð­ar.

Engum dylst að hús­næð­is­verð og hús­næð­is­kostn­aður er allt of hár á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Leyfi ég mér í þessu sam­hengi að full­yrða að kaup­mátt­ar­aukn­ing und­an­far­inna ára hafi brunnið inni með of háum hús­næð­is­kostn­aði. Sitt sýn­ist hverjum hvað þarf til svo lækka megi fast­eigna­verð. Það hefur haldið áfram að hækka þrátt fyrir að margt hafi verið gert til að bregð­ast við.

Auglýsing

Í jan­ú­ar­mán­uði 2014 voru stimp­il­gjöld af láns­skjölum afnumin og veittur afsláttur fyrir fyrstu íbúða­kaup­end­ur. Þannig hefur verið auð­veld­ara að end­ur­fjár­magna og skipta úr verð­tryggðu láni yfir í óverð­tryggt. Í þessu sam­hengi má nefna að verð­bólgan hefur verið sögu­lega lág und­an­farið og þá hafa vextir lækkað jafnt og þétt. Fólki hefur verið gert kleift að greiða sér­eigna­sparn­að­inn sinn inn á íbúða­lán með var­an­legum skatta­af­slætti. Þá mega fyrstu íbúða­kaup­endur ráð­stafa sparn­aðnum sem inn­borgun á íbúð. Bygg­ing­ar­reglu­gerðin hefur verið ein­földuð en enn má gera betur eins og að auð­velda ein­yrkjum og ein­stak­lingum að byggja án strangra krafna um bygg­ing­ar­stjóra og fleira. Þá hafa mörg sveit­ar­fé­lög í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins haft gott lóða­fram­boð, gefið afslátt af gatna­gerð­ar­gjöldum og haldið umsýslu­gjöldum í lág­marki.

Gjöld sem hafa bein áhrif á fast­eigna­verð

Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa hins vegar valið að fara öfuga leið. Eins og flestir þekkja hafa þau sveit­ar­fé­lög, sem hér um ræð­ir, ekki haft nægt fram­boð lóða, sem hentar þeim hópum sem helst vantar hús­næði. Þeim lóðum sem þó er úthlutað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kosta heilan hand­legg með bygg­ing­ar­rétt­ar­gjöld­um, álagi á gatna­gerð­ar­gjöld, inn­viða­gjöld­um, umsýslu­gjöldum o.fl. gjöld­um, sem eru ekk­ert annað en skatt­ar. Gjöld þessi hafa svo bein áhrif á fast­eigna­verð­ið, bæði vegna skorts á eignum og hás bygg­ing­ar­kostn­að­ar, sem skilar sér beint í vasa sveit­ar­fé­lag­anna í gegnum aukin fast­eigna­gjöld af hærra fast­eigna­verði.

Stofn­kostn­aður + bygg­ing­ar­kostn­aður + álagn­ing verk­taka mynda hús­næð­is­verð nýbygg­inga sem hefur svo aftur áhrif á fjár­magns­kostnað af hús­næð­inu. Þessi sviðs­mynd af raun­veru­leik­anum kom skýrt fram í umræðum mínum við Ásmund Einar Daða­son ráð­herra hús­næð­is­mála um áhrif lóð­ar­fram­boðs og lóð­ar­kostn­aðar á fast­eigna­verð á Alþingi 4. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Það má því með sanni segja að sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu séu fíll­inn í her­berg­inu, sem eru búin að seil­ast í vasa bæði fyr­ir­tækja og íbúa sinna með hús­næð­is­gjöld­um, m.ö.o. skött­um. Þetta sést vel á því að staðan er allt önnur á lands­byggð­inni, þar getur ungt fólk miklu frekar fjár­fest í íbúð­ar­hús­næði og fleiri geta farið út í nýbygg­ing­ar. Vand­inn á lands­byggð­inni er raunar sá að hús­næð­is­verðið er ekki nægi­lega hátt svo það borgi sig að byggja.

Lausn kjara­við­ræðn­anna hlýtur því að fel­ast í því að auka kaup­mátt fólks og gera það með skyn­sömum hætti. Sjálfur tel ég að svig­rúm ætti að vera til staðar til að lækka hús­næð­is­kostnað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem stærða­hag­kvæmni sveit­ar­fé­laga ætti að gefa svig­rúm til að lækka bygg­ing­ar­rétt­ar­gjöld, inn­viða­gjöld og útsvarspró­sentu líkt og sveit­ar­fé­lögin í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hafa gert, eins og t.d. í Grinda­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None