Borgarlíf eða borgarstríð

Borgarfulltrúi Viðreisnar, Pawel Bartoszek, skrifar um borgarlífið.

Auglýsing

Hjóla-­borg­ar­inn vakn­ar. Klæðir sig venju­lega. Hann hjólar því það rignir ekki. Hann geymir hjólið sitt úti. Það er læst með skíta­lás. Hann hjólar ekki með hjálm og ekki í sér­stöku vesti.

Hann rennur sér niður brekk­ur. Hjólar á jafn­sléttu og reiðir hjólið upp stærri hæð­ir. Hann lítur ekki á hjól­reiðar sem lík­ams­rækt heldur sem eins­konar leið til að labba með aðeins minni áreynslu. Hann fer ekki í sturtu eftir hverja hjóla­ferð.

Hann skilur hjólið sitt eftir á ýmsum stöð­um. Hjól­unum hans er stundum stolið. Hann hjólar lítið á vet­urna. Hann á ekki ljós.

Auglýsing

Hjóla­stríðs­mað­ur­inn

Hjóla­stríðs­mað­ur­inn vakn­ar. Hann ætlar í vinn­una. Hann fer í hjóla-her­bún­ing, bux­ur, jakka, og sér­stakt vesti til að allir sjái hann. Hann setur á sig hjálm.

Hann fer í lyft­una og ýtir á -1. Hann er á leið í kjallarann, í vopna­búð­ið, þar sem stríðstólið sjálft er geymt. Á vet­urnar notar hann nagla. Á sumrin er hann á götu­hjóli á örmjóum dekkj­um.

Hann vopnar hjólið með sér­stöku GPS-tæki, tengdu við snjall­síma og hágæða mynda­vél. Það verður að vera hægt að mynda átök­in.

Hann hjól­ar. Sem mest á göt­unni. Hratt. Hann er með­vit­aður um rétt sinn og gefur ekki eft­ir. Hann fer langt og lengir leið­ina suma daga vik­unn­ar. Þegar hann kemur til vinnu fer hann í sturtu. Því hann er sveitt­ur. Eftir átök­in. 

Það má vera alls konar

Það er til alls­konar fólk og ég er ekki að halda því fram að það sé meira töff að hjóla á einn veg eða ann­an. Ég stunda sjálfur hlaup. Hlauparar eru eins konar “göng­u-­stríðs­menn”: Við klæðum okkur í sér­stök föt, sér­staka skó, með göddum á vet­urna og án þeirra á sumr­in. Við klæðum í sjálf­lýsandi vesti. Ef það er myrkur þá hlaupum við með lugt á enn­inu og við skráum hlaupa­á­tökin í sér­stöku for­riti með hjálp sér­staks úrs.

Ef við förum langt þá tökum við með sér­stakan hlaupa­bak­poka þar sem við geymum vatn, mat, auka­föt og annað sem stríðs­menn þurfa að hafa.

En þótt ég sjálfur stunda það að fara um á tveimur jafn­fljót­um, hlað­inn auka­bún­aði, þá dettur mér ekki í hug að það væri gott að lög­festa stóran hluta af honum eða jafn­vel að líta á það sem mark­mið í sjálfu sér að sem flestir noti allan þennan auka­bún­að.

Óþarfi að þröngva öllum í her­klæðin

Kannski væri þægi­legra fyrir öku­menn ef allir gang­andi væru með höf­uð­ljós. En ef við myndum gera það að glæp að ganga án höf­uð­ljósa þá myndi fólk síður labba. Við viljum ekki gera það flókn­ara að labba. Það er gott að fólk labbi.

Borgir eiga að geta rúmað alls konar hjólandi og alls konar labbandi fólk. Það á ekki að banna fólki að hjóla á göngu­stíg­um. En það á heldur ekki að ýta öllum út í það að vera hjóla­stríðs­menn. Ítar­legar reglur um hjálma­skyldu, klæðnað eða annan búnað sem gang­andi og hjólandi þurfa vera með á sér gera það flókn­ara að labba og hjóla. Á end­anum ýta þær öllum inn í bíl­ana, þar sem allur örygg­is­bún­að­ur­inn fylgir með, og eng­inn þarf að pæla í neinu.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar