Af allskyns druslum

Særún Magnea Samúelsdóttir
drusluganga.png
Auglýsing

Þann 25. júlí næst­kom­andi mun fjórða Druslu­gangan leggja af stað frá Hall­gríms­kirkju en Druslu­göngur eiga það sam­merkt að stuðla að því að færa áhersl­una frá hátt­erni og klæðn­aði brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis að ger­end­un­um. For­saga máls­ins er sú að kanadískur stjórn­mála­maður reyndi að kenna brota­þola nauðg­unar um það að við­kom­andi var nauðgað vegna þess að kon­an, brota­þol­inn, hafði að hans mati verið druslu­lega klædd og hagað sér eins og drusla, verið of full og ábyrgðin væri því henn­ar. 

Í beautytips­hópnum á Face­book hefur rignt inn sögum kvenna af nauðg­unum og þar er mik­ill vilji til þess að skila skömminni til ger­end­anna og losa sig við þessa sömu ábyrgð og kanadíski stjórn­mála­mað­ur­inn vildi eigna brota­þolum kyn­ferð­is­of­beld­is. Nauðg­anir eru samt ekki eftir for­skrift og eru mjög mis­mun­andi. Við­brögð brota­þola eru mjög mis­mun­andi og engin ein rétt leið fyr­ir­finnst til að bregð­ast við slíku ofbeldi. Sumir frjósa, aðrir berj­ast um, aðrir gera eitt­hvað allt ann­að. Það virð­ist samt gegn­um­gang­andi að þeir sem voru fullir þegar verkn­að­ur­inn átti sér stað, fóru vilj­ugir með við­kom­andi og náðu ekki að sporna við verkn­að­inum taki þessa ábyrgð á sig.

Auglýsing


Ég var ekki full. Ég var ekki druslu­lega klædd. Ég reyndi að berj­ast á móti, en þið sem hafið reynt að bola burt 100 kg manni á meðan þið hafið haldið á iðandi smá­barni skiljið alveg að slíkt er ekki hægt. Ég sagði nei, ég sagði hættu, ég grét en allt kom fyrir ekki. Meðan barnið blaðr­aði í fang­inu á mér hjakk­að­ist hann á mér eins og tusku­dúkku því það var hans rétt­ur. Ég hef alltaf upp­lifað þessa atburða­rás sem nauðg­un. Ég hef aldrei talið mig bera ábyrgð á henni. Þetta var ekki mér að kenna. Samt tók það mig tíu ár að leggja fram kæruna.



Brota­þolar heim­il­is­of­beldis eru oft fastir í aðstæð­unum og ná ekki að koma sér úr sam­bönd­unum og ná þeirri fjar­lægð sem þarf til að byggja sig upp. Oft er ástæðan sú að brota­þola er hótað því að missa börnin eða að við­kom­andi hefur verið brot­inn mark­visst nið­ur. Sömu lög hafa hingað til gilt um ofbeldi í nánum sam­böndum og annað ofbeldi hér á landi. Því þarf að breyta. Eitt af því sem þarf að taka á er að fyrn­ing­ar­tím­inn er sá sami sem er mjög órétt­látt því að brota­þolar heim­il­is­of­beldis koma sér oft ekki úr sam­band­inu og ná að byggja sig upp innan fyrn­ing­ar­tím­ans eins og áður sagði. Fæstir sem búa enn með maka sínum ná að kæra við­kom­andi fyrir það ofbeldi sem hann er eða hefur verið beittur innan sam­bands­ins.



Við þurfum úrræði fyrir alla og lög sem skilja það og við­ur­kenna að ofbeldi og afleið­ingar ofbeldis í nánum sam­böndum eru oft ann­ars eðlis en ofbeldi og afleið­ingar þess þegar um ótengda aðila er um að ræða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None