Bakherbergi: Kona á leið í ritstjórastól hjá 365 miðlum

forsidumynd.000.jpg
Auglýsing

Það er orðið nán­ast árlegur við­burður að allt fari á hlið­ina innan 365 miðla. Síð­ustu hrær­ingar spruttu upp frá því að frétt um Geir Ólafs að borða með lötum kokki var fjar­lægð af frétta­vef sam­steypunnar af nýráðnum útgef­anda, Krist­ínu Þor­steins­dótt­ur. Í kjöl­farið var Mik­ael Torfa­son rek­inn og Ólafur Steph­en­­sen hætti, en þeir voru rit­stjórar frétta­stofu 365. Í Bak­her­berg­inu er því slegið föstu að Kristín ráði nú að því öllum árum að ráða inn nýtt stjórn­enda­teymi. Þeir sem til þekkja segja að ekk­ert komi annað til greina í huga Krist­ínar en að kona verði sett í rit­stjóra­stól­inn, enda yfir­lýst stefna hennar að auka hlut kvenna í fjöl­miðlum sam­steypunn­ar. Því til við­bótar hefur Kristín haft sam­band við þónokkra þeirra starfs­manna Frétta­blaðs­ins sem annað hvort hættu eða voru reknir eftir að Mik­ael Torfa­son tók við í fyrra og beðið þá að snúa aft­ur, en án árang­urs.

Dýrt að reka marga dýra stjórn­endur



Það er þó dýrt að standa alltaf í því að reka vel haldna stjórn­end­ur. Í maí var til­kynnt að Stefán Hilm­ars­son fjár­mála­stjóri myndi hverfa til ann­arra starfa. Í júlí var Freyr Ein­ars­son, yfir­maður sjón­varps, rek­inn. Skömmu síðar var til­kynnt að Ari Edwald, for­stjóri 365 miðla, hefði líka verið rek­inn. Auk þess er stutt síðan skipt var um yfir­mann fjar­skipta- og tækni­s­viðs og svo hættu auð­vitað rit­stjór­arnir tveir, annar rek­inn og hinn hætti. Í Bak­her­bergj­unum er full­yrt að upp­sagn­ar­frestir sem þurfi að greiða vegna þess­ara aðila kosti tugi millj­óna hið minnsta.

Bak­her­bergið birt­ist í nýj­ustu útgáfu Kjarn­ans. Lestu hana hér.

 

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None