Í byrjun janúar var kallað eftir því úr bakherberginu að Blaðamannafélag Íslands myndi láta heyra í sér vegna þeirrar stöðu sem er uppi á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Gríðarleg ólga hefur verið þar vegna breytinga á DV og Árvakri, samdráttar og ætlaðra pólitískra hótana gagnvart RÚV og stanslausra sviptinga á 365 miðlum, sem hafa meðal annars opinberast í því að ritstjóri hefur ásakað eigendur um að ganga freklega gegn ritstjórnarlegu sjálfstæði.
Bakherbergið hnýtti í að Blaðamannafélag Íslands bærði ekki á sér vegna þessarar stöðu, þrátt fyrir að gróflega væri vegið að starfsöryggi og sjálfstæði fjölmargra blaðamanna, sem félagið á að gæta hagsmuna fyrir.
Formaður og framkvæmdastjóri Blaðamannafélagsins, Hjálmar Jónsson, brást ókvæða við og hellti sér yfir Kjarnann fyrir að stunda launvíg að félaginu og bera á borð ósannindi. Kjarninn fagnaði gagnrýninni, og þar með þátttöku Blaðamannafélagsins í faglegri umræðu um mikilvæg málefni, en hafnaði henni algjörlega efnislega.
Í kjölfarið hefur Blaðamannafélagið hins vegar vaknað og í dag boðaði það, ásamt Félagi fréttamanna, til pressukvölds um sviptingar á fjölmiðlamarkaði. Í frétt á heimasíðu Blaðamannafélagsins segir: „Síðustu mánuðurnir og misserin hafa einkennst af miklum sviptingum á fjölmiðlamarkaði. Það er því miður ekki nýtt því starfsmenn fjölmiðlafyrirtækja hafa búið við einstakt óöryggi í starfsumhverfi sínu, ekki hvað síst í aðdraganda og eftirmálum hrunsins, þó sviptingar hafi alla tíð einkennt þennan starfsvettvang. Undanfarið hefur fjármögnun Ríkisútvarpsins verið í brennidepli og horfir þar til mikils niðurskurðar. Átök hafa verið um eignarhald á DV og öflugir fjölmiðlamenn hrökklast þaðan í burtu og eru með í undirbúningi stofnun nýs fjölmiðils. Þá hafa líka verið breytingar á 365 miðlum bæði í hópi stjórnenda og blaðamanna þar.“
Í pallborði verða Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri RÚV, Björn Ingi Hrafnsson,útgefandi DV og Pressunar, Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar, og Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar.
Fyrr sama daga hafði fjölmiðlanefnd boðað til hádegisfundar ásamt Siðfræðistofnun Háskóla Íslands til að ræða stöðu tjáningarfrelsisins í kjölfar voðaverkanna á ritstjórnarskrifstofum Charlie Hebdo.
Í bakherberginu er þessari faglegu umræðu um stöðu fjölmiðlunar og tjáningarfrelsis fagnað og ástæða er til að hrósa viðbrögðunum.
Að gefnu tilefni er vert að ítreka, enn og aftur, að bakherbergið er á ábyrgð ritstjóra Kjarnans. Öll frekari gagnrýni má því beinast beint að honum, leiðist einhverjum nafnleysið.