Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki telja ráðlegt að Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi innanríkisráðherra og varaformaður flokksins, taki sæti á þingi að nýju. Þá Finnst Elínu að Hanna Birna eigi líka að láta af embætti sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Elín er eini þingmaður flokksins sem hefur talað með þessum hætti opinberlega.
Í frægri stöðuuppfærslu sinni á Facebook, þar sem ofangreint kom fram, skrifaði Elín: „En mikilvægast er að stjórnmála- og ráðamenn landsins dragi lærdóm af málinu og axli ábyrgð á mistökum sem þessum gagnvart umbjóðendum sínum, almenningi í landinu.“
Í bakherberginu hafa margir gaman af því hvað lífið getur verið hverfullt. Þar var rifjað upp hvernig eiginmaður Elínar, Friðrik Friðriksson, vann að tjaldabaki í aðdraganda síðustu Alþingiskosninga að því að velta Bjarna Benediktssyni úr stóli formanns Sjálfstæðisflokks, að því er virðist til að koma Hönnu Birnu í stólinn. Í frétt á Stöð 2, sem birtist 12. apríl 2013 eða rétt rúmum tveimur vikum fyrir kosningar, var fullyrt að Friðrik hefði tvívegis hvatt Bjarna til að segja af sér formennsku. Í viðtalinu sagðist Elín ekki hafa hugmynd um skoðanir eiginmanns síns, því hann hefði sína eigin „kennitölu.“
Á þessum tíma var staða Bjarna sem formanns Sjálfstæðisflokksins mjög veik, sem var ekki síst tilkomin vegna könnunar Viðskiptablaðsins, þar sem fram kom að mun fleiri myndu styðja flokkinn með Hönnu Birnu í broddi fylkingar. Um könnunina sagði Bjarni að öfl innan Sjálfstæðisflokksins væru að vinna gegn sér. Þá má geta þess að annar blaðamaðurinn sem skrifaður var fyrir fréttinni um könnunina var Gísli Freyr Valdórsson, sem síðar varð aðstoðarmaður Hönnu Birnu þegar hún varð innanríkisráðherra. Hanna Birna sór af sér að hún tengdist nokkuð þessum „öflum“ innan Sjálfstæðisflokksins sem væru að vinna gegn sitjandi formanni flokksins, í áðurnefndri frétt á Stöð 2.
Þann 24. maí 2013 hélt Elín Hirst lofræðu um Hönnu Birnu sem birtist í DV. Þar sagði Elín: „...þar fer hlý og góð manneskja sem er sterkur leiðtogi. [...] Hún segir að við eigum að vera breytingarnar sem við boðum. Sem í mínum huga þýðir að stjórnmálamenn eigi að sýna gott fordæmi hvar sem þeir fara. Stjórnmálamenn eiga í störfum sínum að þjóna því fólki sem þeir eru umbjóðendur fyrir og það finnst mér Hanna Birna gera.“
Í bakherberginu hefur nýleg kúvending Elínar gagnvart Hönnu Birnu verið rædd. Þá eru meiningar innan bakherbergisins um að konan sem fyrst stígur fram og hvetur Hönnu Birnu til að segja af sér sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins sé hvað líklegust til að bjóða sig fram til embættisins. Enda ljóst að töluverð eftirspurn verður eftir konu til að taka sæti við hlið Bjarna Ben í framvarðasveit flokksins. Með útspili sínu gagnvart Hönnu Birnu hefur Elín nú kastað sínum hatti inn í þann hring.