Bakherbergið: MS spyr hvort þú hafir flett ofan af fornu samsæri

MS.ferna-.jpg
Auglýsing

Það hefur vart farið fram­hjá neinum að Mjólk­ur­sam­salan (MS) hefur átt undir högg að sækja í umræð­unni und­an­farin miss­eri. Nið­ur­staða Sam­keppn­is­yf­ir­valda um að fyr­ir­tækið hafi mis­notað gróf­lega mark­aðs­ráð­andi stöðu sína til að kné­setja pinku­litla sam­keppn­is­að­ila, og hroka­full við­brögð for­svars­manna iðn­að­ar­ins, sem harð­neita að nokkuð óeðli­legt hafi átt sér stað, hafa fram­kallað reiði­bylgjur um allt sam­fé­lag­ið.

Í Bak­her­ber­bergj­unum var á tíma­bili um lítið annað rætt en þau ætl­uðu brot sem fyr­ir­tækið hefur framið gagn­vart neyt­endum og sam­keppni í land­inu með ein­ok­un­ar­til­burðum sín­um. Þessi sam­töl náðu aug­ljós­lega langt út fyrir þau skúma­skot því vikum saman hefur mátt sjá íslenska neyt­endur eyða drykk­löngum tíma fyrir framan mjólk­ur­kæla versl­anna við að reyna að finna út leiðir til að kaupa sem flestar nauð­synjar­mjólk­ur­vörur af öðrum fram­leið­endum en MS. Slíkt er hins vegar erfitt, enda mark­aðs­hlut­deild þessa risa­fyr­ir­tæk­is, sem hefur notið verndar og lið­sinnis sterkra og sér­hags­muna­drif­inna stjórn­mála­manna ára­tugum sam­an, nán­ast lík­lega vel yfir 95 pró­sent.

Það hefði því verið eðli­legt að ætla að MS myndi huga stra­tegískt að almanna­tengsla­málum sínum næstu mán­uð­ina og reyna að passa upp á að ekk­ert nýtt kæmi upp sem gæti vakið upp minn­ingar um hina ætl­uðu mis­notk­un. Stjórn­endum MS hefur því lík­ast til þótt það afbragðs hug­mynd að taka þátt í átak­inu „Allir les­a“, sem er ætlað að auka lestur þjóð­ar­innar á bókum í októ­ber. Meðal þess sem MS leggur til átaks­ins er að merkja mjólk­ur­fernur með hvatn­ing­ar­skila­boðum til verð­andi les­enda. Í ljósi þess sam­særis gegn neyt­endum sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið kom nýverið upp um, og fjöl­miðlar hafa síðan rakið að hafi lík­ast til staðið yfir ára­tugum sam­an, hefði mark­aðs­deild MS þó lík­leg­ast átt að velja aðeins betri skila­boð á fern­urn­ar:

Auglýsing

MS.ferna

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None