Bakherbergið: Óhuggulegar sögur af landspítalanum

RSlUjTkB-0725.jpg
Auglýsing

Að und­an­förn­u hefur magnað björg­un­ara­frek lækna á land­spít­al­anum verið nokkuð til umræðu og til umfjöll­unar í fjöl­miðl­um, þegar manni var bjargað frá dauða eftir að hann var stung­inn í hjart­að. Í bak­her­berg­inu er því sér­stak­lega fagnað að hér á landi sé fram­úr­skar­andi gott heil­brigð­is­starfs­fólk sem geti unnið svona afrek undir miklu álagi.

En á sama tíma heyr­ast líka óhuggu­legar sögur af land­spít­al­an­um. Þær koma frá venju­legu fólki, aðstand­endum sjúkra sem fá mun verri þjón­ustu en fólk á almennt að venj­ast. Allir gera sér grein fyrir því að heil­brigð­is­starfs­fólk er allt að vilja gert, en því miður er það svo að álagið getur stundum orðið ill við­ráð­an­legt. Á dög­unum lýstu for­eldrar ungs drengs því fyrir fólki í bak­her­berg­inu að dreng­ur­inn hefði næstum kom­ist í lífs­hættu vegna þess að hann þurfti að bíða svo lengi eftir því að kom­ast undir lækn­is­hend­ur. Um var að ræða veik­indi sem stig­mögn­uð­ust áður en lækn­ir­inn greindi hann og hægt var að bregð­ast við með hjálp lyfja. Hann nefndi við for­eld­rana að litlu hefði mátt muna.

Í bak­her­berg­inu voru einnig fleiri sögur rædd­ar, þó til­fellin hafi verið væg­ari í þeim til­vik­um. Ein­fald­lega verri þjón­usta, minni aðstoð við sjúka og aðstand­endur þeirra. Verk­falls­að­gerðir lækna hafa haft ­mikil áhrif á heil­brigð­is­þjón­ust­una. ­Mörg hund­ruð aðgerðum hefur verið frestað og álagið jókst til muna. Þannig hafa til dæmis bók­aðir tímar hjá læknum á göngu­deildum geð­deilda fallið niður ítrek­að, bara svo eitt ein­angrað dæmi sé tek­ið. Ekki þarf að hafa mörg orð um hversu alvar­legar afleið­ing­ar þetta getur haft.

Auglýsing

Í bak­her­berg­inu hneyksl­ast menn á því að stjórn­mála­menn opni ekki augun fyrir þessu skelfi­lega ástandi sem hefur skap­ast á þessum stærsta og mik­il­væg­asta vinnu­stað lands­ins. Stjórn­völd þurfa að höggva á hnút­inn sem kjara­bar­átta lækna er í, og alltof langur tími hefur liðið án þess að lausn hafi verið fund­in, eða vel á annað mán­uð! Von­andi byrjar næsta ár ekki með verk­falls­að­gerð­um, og enn frek­ari þjón­ustu­skerð­ingu. Sög­urnar óhuggu­legu sem heyr­ast í bak­her­berg­inu af stöð­unni á land­spít­al­anum bera vott um að þol­mörkin hafi verið rof­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None