Bjór, pólitík og unga fólkið

Natan Kolbeinsson
bjor12.jpg
Auglýsing

Eins og alþjóð veit þá fóru fram for­manns­kosn­ingar í Heimdalli í vik­unni. Þessar for­manns­kosn­ingar voru ekki frá­brugðnar for­manns­kosn­ingum hjá þeim und­an­farin ár. Ungu fólki úr fram­halds­skólum Reykja­víkur var smalað á kjör­stað og þeim lofað góðu partýi ef þeirra hlið bæri sigur úr být­um.

Þessi mynd af ung­liða­hreyf­ingum sem drykkju­fé­lögum fólks hefur verið til staðar frá því ég man eftir og var til staðar löngu áður en ég byrj­aði að taka þátt í starfi ung­liða­hreyf­inga árið 2010. Ég ætla alls ekki að halda því fram að ég sé partur af bind­ind­is­hreyf­ingu sem aldrei snerti áfengi. Það er alveg rétt að við drekkum bjór og höldum partý, enda er það full­kom­lega eðli­legt í öllu félaga­starfi að gleðj­ast saman yfir árangri okk­ar.

Umræðan á miðl­unum virðst þó ein­skorð­ast við það að ung­liðar stjórn­mála­flokk­anna geri ekk­ert nema drekka bjór og halda partý. Því langar mig að segja ykkur frá öllu hinu sem ég hef gert í starfi ung­liða­hreyf­inga.

Auglýsing

Frá því ég byrj­aði í Ungum jafn­að­ar­mönnum hefur starf sam­tak­ana vaxið ótrú­lega hratt. Það hefur farið frá því að vera í mik­ili lægð yfir í fjölda­hreyf­ingu sem tekst á um mál­efni líð­andi stunda. Mikið mál­efna­starf fer fram í Ungum jafn­að­ar­mönnum og sýnir það sig kannski best þegar horft er á þá skýru breyt­ingu sem varð á stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar á síð­asta lands­fundi.

Við ung­liðar unnum mikið og öfl­ugt mál­efna­starf fyrir lands­fund og héldum mál­efna­fundi þar sem við kynntum okkur mál­in, ræddum hvert við annað um hvað okkur lang­aði að gera og stóðum svo þétt saman á lands­fundi til að berj­ast fyrir því sem við trúðum á. Ég hef tekið þátt í að skipu­leggja atriði allra ung­liða­hreyf­inga í gleði­göng­unni til að sýna sam­stöðu ungs fólks með rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks. Við höldum lands­þing árlega þar sem við tökum heila helgi í það að ræða okkar hjart­ans mál og þó við drekkum bjór eftir langa fundi til að fagna því góða starfi sem við unnum á árinu, þá er það langt frá því að vera aðal­at­riði. Við ferð­umst út fyrir land­stein­ana til að hitta skoð­an­systk­ini okkar á norð­ur­löndum og í Evr­ópu. Í ung­liða­starfi hef ég byggt upp tengsla­net sem ég hef aðgang að alla ævi og er alltaf að efla.

Maður hefur greið­ari aðgang að stjórn­mála­fólki og gefst færi á að ræða við það um stöðu mála í sam­fé­lag­inu.

Ég ætla biðja ykkur um að dæma ekki starf ung­liða­hreyf­inga út frá drykkju og lélegum starfs­háttum eins félags sem skemmir orð­spor okkar hina sem erum í ung­liða­starfi til þess að bæta sam­fé­lag­ið. Ég vona að allir sem áhuga hafa kynni sér starf ung­liða­hreyf­inga og taki þátt, þetta starf er gef­andi og skemmti­legt. Frá­bær leið til að byrja er að mæta á lands­þing okkar í Ungum jafn­að­ar­mönnum sem fer fram helg­ina 9. til 11. októ­ber og sjá hvernig starfið okkar er í raun og veru.



Höf­undur er fyrr­ver­andi for­maður Hall­veig­ar, ungra jafn­að­ar­manna í Reykja­vík.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None