Borgin verður að passa sig - Hvalveiðarnar „standa líka í vegi“ fyrir ýmsu

18963089720_12f63c74f8_b.jpg
Auglýsing

Lær­dóm­ur­inn af klúðri borg­ar­full­trúa meiri­hlut­ans í Reykja­vík, þegar kemur að van­hugs­aðri til­lögu um að snið­ganga vörur frá Ísra­el, er ekki endi­lega bara sá að borgin eigi ekki að blanda sér í utan­rík­is­mál Íslands með yfir­borðs­kenndu og órök­studdu orða­lagi til­lagna, heldur frekar að við lifum í alþjóða­væddum heimi þar sem ákvarð­anir stjórn­mála­manna hafa bein áhrif á dag­legt líf.

Eins og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri hefur bent á sjálfur þá segir hann ­til­lög­una ekki hafa verið nægi­lega vel und­ir­búna og íhug­aða. Það er óhætt að segja að það sé rétt mat hjá Degi.

Gyð­inga­sam­fé­lagið hefur risið upp víða um heim, sam­kvæmt fréttum í það minnsta, og mót­mælt þess­ari til­lögu með því að taka íslenskar vörur úr búðum og afboða ferðir hingað til lands. Samt er þetta enn sem komið er lítið brot af heild­inni, og enn má finna vatn frá Icelandic Glaci­al, fyr­ir­tæki Jóns Ólafs­sonar, til sölu í New York (Kjarn­inn kann­aði það áðan!), þrátt fyrir að Jón hafi fundið skýrt fyrir nei­kvæðum áhrifum af flumbru­gangi meiri­hlut­ans.

Auglýsing

Í bak­her­berg­inu er fólk almennt sam­mála um að við­skipta­bönn og við­skipta­hömlur séu arfa­vit­laus leið til að mót­mæla pólítískri stefnu eða ­mann­rétt­inda­brot­um, þó reyndar séu á því und­an­tekn­ing­ar. Einkum og sér í lagi þegar alþjóða­sam­fé­lagið stendur saman að ákvörð­unum með það að mark­miði að vernda heims­frið.

En yfir­leitt bitna við­skipta­bönn og hömlur beint á almenn­ingi sem hefur ekk­ert með deilur eða ákvarð­anir stjórn­mála­manna að gera.

Það má líka ekki gleyma því að ákvarð­an­ir ­stjórn­mála­manna á Íslandi hafa á hverjum degi áhrif á við­skipta­mögu­leika íslenskra fyr­ir­tækja, ekki síst í Banda­ríkj­un­um. Á þetta hefur Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra bent, og nefnt hval­veiðar Íslend­ingar sér­stak­lega í því sam­hengi og sagt þær „standa í vegi fyrir ákveðnum hlut­u­m“.

Það er ekki alltaf að auð­velt með­höndla mál þar sem alþjóð­legir hags­munir eru ann­ars veg­ar. Lík­lega er það eins og með margt ann­að; það er ekki hægt að gera öllum til geðs. En borg­ar­full­trúar meiri­hlut­ans í Reykja­vík hljóta að sjá það núna, að þeir þurfa að passa sig þegar þeir ger­ast svo djarfir að blanda starfi sínu fyrir borg­ar­búa inn í flóknar og hat­rammar deilur á alþjóða­vett­vangi.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None