Ert þú að leita að fjólubláum íkorna?

Kristján Pétur Sæmundsson
purplesquirrel-1.jpg
Auglýsing

Er æski­legt að orða atvinnu­aug­lýs­ingar þannig að þær eigi við um sem flesta og fæli engan frá? Er eðli­legt að óska eftir við­skipta­fræð­ingi með að lág­marki 5 ára reynslu af fjár­stýr­ingu fyrir 350 þús­und krónur á mán­uði?

Frá haust­mán­uðum 2008 og þar til nýlega má segja að atvinnu­rek­endur hafi búið við ein­stak­lega góð kjör með til­liti til vals á starfs­mönnum og launa­kjara. Fyrst um sinn jókst atvinnu­leysi á sama tíma og þeir sem héldu sínum störfum prís­uðu sig sæla af þeirri ástæðu einni. Áhersla laun­þega var því um tíma á að búa að starfi í stað þess að fá fyrir það eðli­leg og sann­gjörn laun í sam­ræmi við virði.

Síð­ustu ár hefur laus staða þýtt ótelj­andi umsóknir hæfra aðila fyrir kjör sem sam­ræm­ast ekki alltaf þeim vænt­ingum sem gerðar eru til starfs­ins. Reglu­lega má sjá atvinnu­aug­lýs­ingar sem eru almennt orð­aðar og gera miklar kröfur til til­von­andi starfs­manns. Við­skipta­stjóri með háskóla­próf, starfs­reynslu, sölu­drifni, ótak­mark­aðan tíma, hæfni í mann­legum sam­skiptum og hóf­stilltar launa­kröfur er fjólu­blár íkorni.

Auglýsing

Í ráðn­ingum er talað um fjólu­bláan íkorna (e. purple squirrel) þegar fund­inn er aðili sem passar í eins og flís við rass við starfs­lýs­ing­una án þess að þurfa svo mikið sem þjálf­un. Eins og gefur að skilja eru fjólu­bláir íkornar vand­fundnir en eft­ir­spurn eftir þeim mik­il.

Starfs­manna­leit sem gengur út frá því að fjólu­bláir íkornar finn­ist með lít­illi fyr­ir­höfn og til­kostn­aði, end­ist í starfi, upp­lifi virði sitt og skili fyr­ir­tæk­inu lang­tíma­verð­mætum má líkja óhóf­lega bjart­sýna hrein­dýra­skyttu. Skyttan ætlar að fella 140 kg tarf, með stór horn, fyrsta dag­inn í túrn­um, án þess að ganga meira en 5 km og helst án aðstoðar sjón­auka. Umræddur veiði­maður kann að hafa keypt veiði­leyfi, ekið austur á land og leigt leið­sögu­mann, en það þýðir ekki að vænt­ingar hans séu raun­hæf­ar.

Eftir því sem atvinnu­lífið hefur vaknað úr dvala hafa sam­hliða skap­ast ný störf. Þess gætir þó enn að atvinnu­rek­endur fagni batn­andi gengi rekst­urs­ins án þess að setja það í sam­hengi við nýjan raun­veru­leika á atvinnu­mark­aði. Árið 2008 er komið og farið og góðir starfs­kraftar eiga aftur val um vinnu­staði. Atvinnu­rek­endur þurfa að vera með­vit­aðir um þessa áhættu, rækta fólkið sem fyrir er og gæta þess að gera eðli­legar kröfur þegar ákvörðun er tekin um nýja ráðn­ingu. Ef til stendur að ráða starfs­mann sem á að koma inn í fyr­ir­tækið eins og storm­sveipur og hafa raun­veru­leg áhrif er lík­legt að við­kom­andi vilji raun­veru­lega við­ur­kenn­ingu og finni fyrir því frá fyrsta við­tali að til­von­andi vinnu­veit­andi skynji, skilji og kunni að meta þá hæfi­leika sem óskað er eft­ir.

Höf­undur starfar við stjórn­enda- og mannauðs­ráð­gjöf hjá Hag­vangi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None