Ferska og kraftmikla rödd í rektorsembættið

GudrunNordal_P7A6200_BaldurKristjans-1.jpg
Auglýsing

Á morgun kjósa starfs­menn og nem­endur nýjan rektor Háskóla Íslands. Við erum svo heppin að eiga kost á mjög hæfum fram­bjóð­anda, Guð­rúnu Nor­dal, pró­fessor og for­stöðu­manni Árna­stofn­un­ar.

Við teljum það kapps­mál að fá nýjan rekt­or, sem hefur sýnt í öllum sínum verkum að hann er bæði fram­úr­skar­andi fræði­maður og rétt­sýnn leið­togi. Guð­rún vinnur vel með fólki, virkjar það til góðra verka og leiðir saman ólíka hópa til far­sæls sam­starfs. Hún leggur áherslu á sam­vinnu og leysir mál með opinni og lýð­ræð­is­legri umræðu. Þetta teljum við nauð­syn­legt til þess að Háskóli Íslands geti blómstrað sem þjóð­ar­há­skóli.

Guð­rún Nor­dal var stjórn­ar­for­maður sam­nor­ræna rann­sókn­ar­sjóðs­ins Nor­d­forsk í fimm ár og hún hefur verið for­maður vís­inda­nefndar Vís­inda- og tækni­ráðs Íslands síð­ustu níu ár. Hún hefur stýrt mik­il­vægum umbótum á báðum stöðum og er til þess tekið hvað hún hefur leitt þessa vinnu á jákvæðan og upp­byggi­legan hátt. Árang­ur­inn er líka eftir því: Á síð­asta ári var tryggð 2,8 millj­arða aukn­ing í sam­keppn­is­sjóði til nýsköp­unar og rann­sókna hér á landi, sem er ein lyk­il­for­senda þess að hægt sé að byggja upp öfl­ugt rann­sókn­ar­starf á Íslandi til fram­tíð­ar. Guð­rún leggur áherslu á að í Háskóla Íslands skuli vera jafn­ræði á milli greina. Með vinnu sinni í Vís­inda- og tækni­ráði hefur hún sýnt þessa hug­sjón í verki og og lagt sig fram um að auka veg allra fræða­sviða.

Auglýsing

Guð­rún á að baki far­sælan kennslu- og rann­sókn­ar­fer­il, heima og erlend­is, og er ötull tals­maður íslenskra fræða á alþjóð­legum vett­vangi. Hún lauk dokt­ors­prófi í forn­nor­rænum fræðum við Oxfordhá­skóla og nýtur nú almennrar við­kenn­ingar á alþjóð­legum vett­vangi sem afburða­vand­aður og afkasta­mik­ill fræði­mað­ur. Hún er pró­fessor í íslensku og hefur und­an­farin ár leitt Árna­stofnun af miklum skör­ungs­skap.

Nýliðun er grund­völlur þess að Háskóli Íslands geti þró­ast og þroskast í íslensku sam­fé­lagi. Við sem skrifum þessa grein erum ungir vís­inda­menn og þekkjum af eigin reynslu hversu erfitt það getur verið að hefja sjálf­stæðar rann­sóknir að námi loknu. Guð­rún hefur sýnt í öllu sínu starfi að hún hlustar sér­stak­lega á rödd ungs vís­inda­fólks og finnur leiðir til að bæta starfs­að­stöðu þess og umhverfi.

Brýn­ustu verkin framundan eru að tryggja fjár­mögnun Háskóla Íslands, efla nýliðun hans og móta kennslu- og rann­sókn­ar­inn­viði með árangur á öllum sviðum og starfs­á­nægju að leið­ar­ljósi. Við teljum Guð­rúnu Nor­dal hafa þá hug­sjón, reynslu og sann­fær­ing­ar­kraft sem þarf til þess að leiða jákvæða þróun Háskóla Íslands á næstu árum. Og síð­ast en ekki síst mun hún verða háskól­anum kraft­mik­ill og karis­mat­ískur leið­togi í brýnu sam­tali við sam­fé­lagið allt.

Mar­grét Helga Ögmunds­dótt­ir, rann­sókn­ar­sér­fræð­ingur við Lækna­deild HÍ, og Viðar Páls­son, lektor í rétt­ar­sögu og sagn­fræði við HÍ.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None