Fögnum og kjósum

Vala Smáradóttir
14128538452_5c89c225a2_z.jpg
Auglýsing

Í ár fögnum við því að hund­rað ár eru síðan konur fengu kosn­inga­rétt og kjör­gengi til þing­kosn­inga á Íslandi. Þar með var stórum áfanga náð í langri og strangri bar­áttu kvenna að fá til jafns við karl­menn að taka þátt í því að móta það sam­fé­lag sem þær bjuggu í. Það er gleði­legt að fagna slíkum áfanga en í dag, 20. apr­íl, ætla ég að fagna með því að nýta mér minn kosn­inga­rétt í rekt­ors­kjöri Háskóla Íslands og taka þátt í að móta það háskóla­sam­fé­lag sem ég vil nema í, mögu­lega starfa í og get stolt mælt með. Það eru for­rétt­indi að fá að taka þátt í slíku kjöri hjá stærstu mennta­stofnun lands­ins.

Í síð­ustu viku fékk ég ásamt öðrum kven­kyns sam­nem­endum Háskóla Íslands sent sms sem miðl­aði þeirri stað­reynd að af 8.699 kven­kyns nem­endum skól­ans hefðu aðeins 3.180 kos­ið, það eru 36,56% Send­andi sms­ins var annar fram­bjóð­enda til rekt­ors, Guð­rún Nor­dal. Í sms­inu sagði orð­rétt „Látum rödd okkar heyr­ast. Kynnið ykkur fram­bjóð­endur og kjósið á mánu­dag!“ Hvergi stóð hvorn fram­bjóð­and­ann ætti heldur að kjósa og voru konur almennt hvattar til að láta rödd sína heyr­ast. Fyrir mér var aug­ljóst hvaða skila­boð smsið hafði að geyma. Að við kon­ur, 69% allra nema í Háskóla Íslands, hefðum í höndum okkar ein­stakt tæki­færi til að hafa áhrif á þessa merku mennta­stofn­un, tæki­færi sem kyn­systur okkar börð­ust fyrir og lögðu grunn­inn að fyrir 100 árum síð­an. Tæki­færi sem við ættum ekki að láta fram hjá okkur fara. Smsið, ætlað stærsta hópnum á kjör­skrá Háskóla Íslands, minnti mig ekki aðeins á hversu mik­il­vægt væri að ég nýtti mér minn rétt heldur hversu sér­stak­lega mik­il­vægt væri, á þessu „herr­ans ári,“ að við, kven­kyns nem­end­ur, í Háskóla Íslands tækjum þátt í fögn­uð­inum með því að nýta okkur kosn­inga­rétt­inn í rekt­ors­kjör­inu.

Sjálf kýs ég Guð­rúnu Nor­dal. Ég veit að ef við viljum beitt­an, klár­an, ákveð­inn en sjar­mer­andi rektor sem er til­bú­inn að berj­ast og beita sér fyrir betri kjörum fyrir allt háskóla­fólk, eiga í sam­tali og sam­starfi við háskóla­fólk og sam­fé­lagið allt, byggja upp sterkan Háskóla og leiða hann inn í fram­tíð­ina þá kemur ekki annað til greina en að kjósa Guð­rúnu. Kosn­inga­bar­átta hennar hefur verið dríf­andi, hrein­skilin og skýr og hefur Guð­rún komið til dyr­anna alveg eins og hún er klædd.

Auglýsing

Í dag kjósum við á milli for­tíðar og fram­tíð­ar, stöðn­unnar og breyt­inga. Í dag fagna ég 100 árum af kosn­inga­rétti og nota minn rétt til að kjósa fram­tíð­ina og breyt­ing­ar.

Höf­undur er meist­ara­nemi í Hag­nýtri menn­ing­ar­miðlun við Sagn­fræði- og heim­speki­deild Háskóla Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None