Leiðtoga- og hugmyndafræðileg krísa hjá Samfylkingunni

16688730898_9546981371_c.jpg
Auglýsing

Það kom lík­ast til fæstum á óvart að nýjar traust­mæl­ingar MMR sýndu mest van­traust gagn­vart Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra. Hann er gíf­ur­lega umdeildur í störfum sínum og hefur ítrekað tek­ist að setja sam­fé­lagið á hlið­ina með yfir­lýs­ingum sínum og athöfn­um. Aldrei hafa jafn margir sagst treysta honum frekar eða mjög lítið og nú (63,2 pró­sent) og er van­traustið á svip­uðum slóðum og það var lengi vel gagn­vart Stein­grími J. Sig­fús­syni og Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur á síð­asta kjör­tíma­bili, en rík­is­stjórn þeirra var ekki síður umdeild.

Sömu­leiðis kom það fáum á óvart að traust á Sig­mund mæld­ist ekki mikið (17,5 pró­sent treysta honum frekar eða mjög mik­ið). Það er í takt við fallandi fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í könn­un­um.

Það vakti hins vegar athygli að annað árið í röð rekur Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, lest­ina í traust­mæl­ing­un­um. Hann er eini stjórn­mála­leið­tog­inn sem sigrar for­sæt­is­ráð­herr­ann þegar kemur að því að mæla hversu fáir treysta honum vel. Sömu­leiðis eykst van­traust á Árna Pál tölu­vert á milli kann­anna og hann er eini stjórn­ar­and­stöðu­for­mað­ur­inn sem yfir 50 pró­sent aðspurðra treysta frekar eða mjög lít­ið. Sjald­gæft er að stjórn­ar­and­stöðu­leið­togi njóti jafn mik­ils van­trausts.

Auglýsing

Auk þess hlýtur það að vera áhyggju­efni hjá Árna Páli að hlut­fall þeirra sem treysta honum vel hefur minnkað í hverri ein­ustu traust­könnun sem fram­kvæmd hefur verið frá því að hann varð for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Og hlut­fall þeirra sem treysta honum illa auk­ist í þeim öllum sömu­leið­is. Og enn meira áhyggju­efni hlýtur að vera að færri bera traust til hans en nokkru sinni Jóhönnu Sig­urð­ar­dótt­ir, for­vera hans í starfi. Á meðan að Jóhanna leiddi á tíðum afar óvin­sæla rík­is­stjórn í gegnum gríð­ar­legan ólgu­sjó stór­kost­legra átaka fór traust­fylgi hennar aldrei neðar en 16,9 pró­sent.

Til við­bótar hlaut Sam­fylk­ingin eina verstu útreið sem stjórn­mála­flokkur hefur fengið í kosn­ingum vorið 2013 þegar flokk­ur­inn fékk ein­ungis 12,9 pró­sent atkvæða, sem eru einu kosn­ing­arnar sem Árni Páll hefur leitt flokk­inn í gegn­um. Áður hafði minnsta fylgi flokks­ins í kosn­ingum verið 26,8 pró­sent.

En verst af öllu fyrir Sam­fylk­ing­ar­fólk hlýtur að vera að flokk­ur­inn tekur ekki til sín neitt óánægju­fylg­inu sem hefur skap­ast vegna óvin­sælda sitj­andi rík­is­stjórn­ar.

En verst af öllu fyrir Sam­fylk­ing­ar­fólk hlýtur að vera að flokk­ur­inn tekur ekki til sín neitt óánægju­fylg­inu sem hefur skap­ast vegna óvin­sælda sitj­andi rík­is­stjórn­ar. Flokk­ur­inn virð­ist fastur í mæl­ingum með um 15 pró­sent fylgi, þrátt fyrir að vera í stjórn­ar­and­stöðu og í miðju stríði á vinnu­mark­aði, en sögu­lega hefur Sam­fylk­ingin og for­verar hennar verið stjórn­mála­flokkar verka­lýðs­ins.  Án Evr­ópu­sam­bandsum­sóknar virð­ist flokk­ur­inn hins vegar ekki vita með fullu hvar hann eigi að fóta sig í hinu póli­tíska litrofi.

Í stað þess að safna vopnum og marka skýra stefnu á nýlegum lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar fór hann að mestu í afar umdeilda for­manns­kosn­ingu sem óum­deil­an­lega skað­aði flokk­inn umtals­vert. Umboð Árna Páls, ofan í allar slæmu kann­an­irn­ar, er veikt eftir að hann sigr­aði Sig­ríði Ingi­björgu Inga­dóttur með einu atkvæði. Í stað þess að koma út af þeim fundi með allar byssur á lofti og skýra stefnu er flokk­ur­inn jafn­vel enn dauf­ari eftir lands­fund­inn en hann var fyrir hann. Og laskaðan for­mann sem kos­inn var til næstu tveggja ára.

Flokk­ur­inn á reyndar mjög sterkan leið­toga í Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra (hann mælist með 37 pró­sent traust í könn­unum MMR) sem leiddi flokk­inn til kosn­inga­sig­urs í Reykja­vík í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum í fyrra. Vanda­málið er að Dagur vill hvorki verða for­maður flokks­ins né fara í lands­mál­in.

Í bak­her­bergj­unum eru menn því sam­mála um að Sam­fylk­ingin sé að upp­lifa for­dæm­lausa leið­toga- og hug­mynda­fræði­lega krísu. Áhuga­vert verður að sjá hvernig flokk­ur­inn hyggst vinna úr henni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None