Frumkvöðull í Háskóla Íslands

MG_9516.jpg
Auglýsing

Á mánu­dag­inn 13. apríl ganga starfs­menn og nem­endur Háskóla Íslands til kosn­inga um hver muni leiða Háskóla Íslands næstu árin. Nýs rekt­ors bíða spenn­andi og vanda­söm verk­efni, eins og að tryggja fjár­mögnun háskól­ans og efla rann­sókn­ar­starf. Tryggja þarf að Háskóli Íslands standi jafn­fætis rann­sókn­ar­há­skólum í þeim lönd­um, sem við viljum bera okkur saman við. Af þeim sem gefið hafa kost á sér teljum við Jón Atla vera bestan til þess fallin að taka það hlut­verk að sér.

Jón Atli er frum­kvöð­ull og aðkoma hans að verk­efnum á því sviði ber vott um það. Hann stund­aði dokt­ors­nám raf­magns­verk­fræði við Pur­du­e-há­skóla með áherslu á staf­ræna mynd­grein­ingu og fjar­könn­un. Sem pró­fessor við raf­magns- og tölvu­verk­fræði­deild Háskóla Íslands hafa rann­sóknir hans hlotið verð­skuld­aða athygli á alþjóða­vett­vangi. Jón Atli hefur þar að auki komið víða við á ferli sínum og setið í nefndum og ráðum sem hlúa að rann­sóknum og tækni­þróun á Íslandi.

Rann­sóknir Jóns Atla hafa m.a. stuðlað að fram­þróun í landupp­lýs­inga­kerfum og lækn­is­fræði svo dæmi séu tek­in. Hann stofn­aði fyr­ir­tækið Oxymap ásamt Ein­ari Stef­áns­syni pró­fessor í augn­lækn­is­fræði og fleir­um. Upp úr þver­fag­legu sam­starfi hafa fær­ustu vís­inda­menn skól­ans þróað tæki til grein­inga á augn­sjúk­dóm­um. Þetta er dæmi um hvernig rann­sóknir við Háskóla Íslands geta stuðlað að fram­þróun og bætt lífs­skil­yrði fólks um allan heim.

Auglýsing

Það er Jóni Atla metn­að­ar­mál að efla rann­sóknir og kennslu í Háskóla Íslands og að starfið þar stand­ist sam­an­burð á alþjóða­vísu. Fram­boð á dokt­ors­námi við Háskóla Íslands hefur auk­ist í hröðum skrefum á und­an­förnum árum og sem aðstoð­ar­rektor vís­inda og kennslu hefur Jón Atli leitt starf sem miðar að því að sam­m­ræma gæða­mál innan skól­ans þannig að ekki sé slakað á í kröfum til náms­ins. Honum er annt um að efla rann­sóknir og treysta rann­sókn­ar­inn­viði.

Við teljum að fram­sýni, bak­grunn­ur, og for­ystu­hæfi­leikar Jóns Atla Bene­dikts­sonar séu lyk­ill­inn að sókn Háskóla Íslands til efl­ingar rann­sókna og nýsköp­un­ar. Öfl­ugur háskóli eflir inn­viði sam­fé­lags­ins, fjölgar atvinnu­tæki­færum og bætir lífs­skil­yrði á Íslandi.

Höf­undar eru raf­magns- og tölvu­verk­fræð­ingar frá Háskóla Íslands. Georg Lúð­víks­son er stofn­andi og for­stjóri Meniga, Ásgeir Örn Ásgeirs­son er stofn­andi og tækni­stjóri Meniga og Guð­mundur Haf­steins­son er Prod­uct Mana­gement Director hjá Google Inc.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None