Góð kaup í Símanum...miðað við verðið á Vodafone

S--minn_02.jpg
Auglýsing

Kaup hóps fjár­festa á fimm pró­sent hlut í Sím­an­um, fyrir 1.330 millj­ónir króna, hafa vakið athygli. Kjarn­inn greindi frá við­skipt­unum með ítar­legum hætti í dag. Hóp­inn leiðir hol­lenski fjár­festir­inn Bertrand Kan, sem er fyrrum yfir­maður hjá Morgan Stanley. Kan þekkir vel til Sím­ans, en hann stýrði meðal ann­ars sölu­ferli hans árið 2005, þegar Sím­inn var einka­vædd­ur, fyrir hönd Morgan Stanley.

Á meðal ann­arra sem keyptu er Orri Hauks­son, for­stjóri Sím­ans, sem keypti sam­tals 0,4 pró­sent hlut fyrir um 106 millj­ónir króna.

Fyrrum for­stjóri eins helsta sam­keppn­is­að­ila Sím­ans, Voda­fone á Íslandi, er á meðal þeirra fjár­festa sem til­heyra hópn­um. Það er Ómar Svav­ars­son og stýrði Voda­fone á Íslandi í fimm ár, eða þar til í maí 2014 þegar honum var sagt upp störf­um. Ómar hafði þá starfað hjá Voda­fone frá árinu 2005.

Auglýsing

Í dag var einnig til­kynnt um að stjórn Sím­ans leggi til að fast­ráðnir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins fái allir tæki­færi til að eign­ast hlutafé í félag­inu þegar það verður skráð á markað í haust. Starfs­menn munu geta á fimm árum tryggt sér hluta­bréf fyrir allt að sex hund­ruð þús­und krónur árlega. Sama verð mun standa starfs­mönn­unum til boða í val­rétt­ar­á­ætl­un­inni og fjár­fest­arnir sem keyptu í dag fengu bréf sín á, eða 2,5 krónur á hlut.

Það sem hefur vakið athygli fólks­ins í bak­her­berg­inu er verð­mið­inn á hlutnum í Sím­an­um, en miðað við kaupin á fimm pró­senta hlutnum er fyr­ir­tækið metið á 26,6 millj­arða, eða sem nemur tæp­lega eigið fé félags­ins, sem var 29,9 millj­arðar um síð­ustu ára­mót.

Sé litið til mark­aðsvirðis keppi­nautar Sím­ans á mark­aði, Voda­fone, er þetta frekar lágt verð. Eigið fé Voda­fone er um átta millj­arðar en mark­aðsvirðið um 15 millj­arð­ar. Ef sami marg­fald­ari væri not­aður á virði Sím­ans, væri mark­aðsvirði þess 56,8 millj­arðar en ekki 26,6 millj­arð­ar.

Sím­inn verður skráður á markað í haust og þá mun koma í ljós hvernig mark­að­ur­inn verð­leggur félag­ið. Það mun ekki koma eins og þruma úr heið­skíru lofti ef verð­mið­inn verður eitt­hvað hærri en sá sem miðað er við í við­skipt­unum í dag. En eins og alltaf þegar kemur að hluta­bréfa­mörk­uðum þá getur ýmis­legt ófyr­ir­séð hreinsað burtu mikil verð­mæti í félögum á skömmum tíma. Það er því ekki á vísan að róa í þessum við­skiptum frekar en öðr­um...

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None