Góð vísa er aldrei of oft kveðin - Mannauðinn þarf að rækta

14428296416_594c7b9d02_z.jpg
Auglýsing

Ræða Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra var flutt undir dynj­andi mót­mæl­um, en í henni sagði Sig­mundur Davíð það sem eflaust margir geta verið sam­mála um. Ísland er gott land, og það getur orðið enn betra, sagði for­sæt­is­ráð­herra. Góð vísa er aldrei of oft kveð­in, hvað þetta snert­ir.

Þetta er rétt hjá for­sæt­is­ráð­herra, og full ástæða til þess að minna á þetta á sjálfan þjóð­há­tíð­ar­dag­inn 17. júní.

Fólkið í bak­her­berg­inu hefur rætt það marg­sinnis, hversu mik­il­vægt það er að huga ekki aðeins að góðum hag­töl­um, heldur ekki síður að mannauði þjóð­ar­innar og hvernig þekk­ing flæðir til og frá land­inu. Hag­vöxtur segir nefni­lega ekki svo mikið um hvort staðan í hag­kerf­inu er góð eða slæm, heldur er mun mik­il­væg­ara að fylgj­ast grannt með því hvaða þekk­ing er að fara úr land­inu, og hvers konar störf eru að koma í stað­inn.

Auglýsing

Margt bendir til þess að verð­mæt þekk­ing­ar­störf hafi verið að fara úr landi, meðal ann­ars á sviði verk­fræði og í iðn­greinum ýmis kon­ar, á meðan lág­launa­störf, meðal ann­ars í ferða­þjón­ustu, hafa orðið til í stað­inn. Þetta þarf ekki að vera slæmt til skamms tíma, en til lengdar er þetta óæski­legt.

Það hefur áður verið á það minnst í bak­her­berg­inu, að Þjóð­skrá Íslands fylgist ekki með því hvernig þekk­ing er að fara til og frá land­inu, og því hefur Hag­stofan ekki góð gögn til þess að vinna úr þegar að þessu kem­ur.

For­sæt­is­ráð­herra fjall­aði, skilj­an­lega, mikið um Ísland á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn (Orðið Ísland kom 15 sinnum fyrir í ræð­unni), en það er líka mik­il­vægt að fjalla um það hvernig Ísland er að þró­ast innan frá og spyrja spurn­inga um hvort mannauður þjóð­ar­innar sé að hreyfast í rétta átt eða ekki. Til fram­tíðar mun hag­vöxt­ur­inn ekki geta komið frá auð­linda­drifnum hluta hag­kerf­is­ins, heldur úr alþjóða­væddum þekk­ing­ar­geira. Þess vegna þarf að rækta mannauð­inn ekki síður en að horfa til góðra hagtalna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None