Auglýsing

Fjögur ár eru liðin frá verstu ódæð­is­verkum sem framin hafa verið í Nor­egi frá því í síð­ari heim­styrj­öld­inni og mann­skæð­ustu hryðju­verkum í rúman ára­tug í Vest­ur­-­Evr­ópu. Óþarfi er að eyða of mörgum orðum í að rifja upp þá ömur­legu atburði, enda eru þeir flestum lík­lega enn í fersku minni.

Það sem er mik­il­væg­ara að rifja mjög reglu­lega upp eru við­brögðin sem Norð­menn sýndu í kjöl­farið á árás­un­um. Strax frá upp­hafi varð það meg­in­stefið að hat­urs­fullum ofbeld­is­verkum yrði ekki mætt með hefnd eða hatri held­ur, eins og Jens Stol­ten­berg þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra sagði í minn­ing­ar­at­höfn skömmu eftir árás­irn­ar, yrði þeim mætt með meira lýð­ræði, opn­ara sam­fé­lagi og meiri mann­úð, en aldrei ein­feldni.

Fjórum árum síðar hafa Norð­menn líka opnað upp­lýs­inga­mið­stöð um voða­verð­in. Þannig, segja þeir, verður best barist gegn öfgum og hatri fólks eins og Breivik. Með því að upp­lýsa fólk, með þekk­ing­unni.

Auglýsing

Þær raddir eru til sem efast um að eins hefði verið tekið á mál­unum ef Breivik hefði ekki verið hvít­ur, krist­inn og norskur að upp­runa. Og það má heldur ekki gleyma því að fyrst um sinn var ekki vitað hver stóð að baki árás­un­um, þá var auð­velt að halda þær múslimsk öfga­verk og múslimar í Nor­egi urðu fyrir aðkasti.

­Þrátt fyrir allt tal um inn­flytj­enda­vanda á Norð­ur­lönd­unum kom mesta hættan sem hefur steðjað að almenn­ingi þar und­an­farna ára­tugi nefni­lega ekki utan frá.

Þessir atburðir eru því líka áminn­ing um að það sem And­ers Breivik var lík­lega og er; ill­ur, veik­ur, með rang­hug­myndir og öfga­skoð­an­ir, fer ekki eftir kyn­þætti, húð­lit, trú eða öðru slíku.

Þrátt fyrir allt tal um inn­flytj­enda­vanda á Norð­ur­lönd­unum kom mesta hættan sem hefur steðjað að almenn­ingi þar und­an­farna ára­tugi nefni­lega ekki utan frá.

Hræðslan



Á Íslandi, rétt eins og ann­ars stað­ar, er til fólk sem hefur svip­aðar skoð­anir á fjöl­menn­ingu og öðrum trú­ar­brögðum og And­ers Breivik. Það er auð­vitað alls ekki sama­sem­merki á milli þess að hafa þessar skoð­anir og þess sem hann gerði - öfga­fullar skoð­anir eru ekki það sama og öfga­fullur verkn­aður eins og hryðju­verk. En það væri ein­feldn­is­legt að láta eins og það sem gerð­ist í Nor­egi gæti ekki gerst á Íslandi, og það er ein­feldn­is­legt að láta eins og hat­urs­full orð­ræða gegn útlend­ingum eða öðrum minni­hluta­hópum sé skað­laus í sjálfri sér og geti ekki þró­ast og orðið að meiru en bara orð­ræðu.

Íslenskt sam­fé­lag verður ekki betra þótt við þöggum þessar raddir nið­ur. Það er ekki eðli­legt að krefj­ast þess að fjöl­miðlar segi ekki frá þeim, eng­inn er betur settur ef við látum eins og öfgarnir séu ekki til. Það þýðir ekki heldur að það þurfi að gera þeim hátt undir höfði eða virða þær. Við megum og eigum að véfengja þær og gagn­rýna. Þannig er best að vinna gegn öfgum – með þekk­ing­unni.

Það þýðir ekki heldur að það þurfi að gera þeim hátt undir höfði eða virða þær. Við megum og eigum að véfengja þær og gagn­rýna. Þannig er best að vinna gegn öfgum – með þekkingunni.

Þótt það sé lít­ill hópur fólks sem gengur svo langt opin­ber­lega á Íslandi að við­ur­kenna hreina útlend­inga­andúð og andúð á öðrum kyn­þáttum eða trú­ar­brögðum þá er tals­vert stærri hópur sem hefur daðrað við skoð­anir af þessu tagi, jafn­vel undir því yfir­skyni að það verði að mega „taka umræð­una.“ Fólk sem seg­ist ekk­ert á móti inn­flytj­end­um, en vill helst bara ekki hafa þá á Íslandi. Fólk sem vill ekki leyfa bygg­ingu mosku og kvartar yfir því að hæl­is­leit­endum fjölgi og að fjár­munum sé varið í útlend­inga. Við höfum jafn­vel séð ein­staka stjórn­mála­menn gefa þessu undir fót­inn, lík­lega í von um atkvæði þeirra hræddu. Við þurfum að spyrna fast við fótum gegn þeirri þró­un, því allt í kringum okkur sjáum við stjórn­mála­flokka sem nær­ast á þessu.

Á Íslandi sáum við þetta nú síð­ast í tengslum við mjög þarfa ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að taka við kvótaflótta­mönnum sem hafa komið til Evr­ópu yfir Mið­jarð­ar­haf­ið. Þá sprettur upp fólk sem vill að allt verði full­komið á Íslandi áður en hægt sé að taka við örfáum ein­stak­lingum af þeim millj­ónum sem eru í sár­ustu neyð. Það vill „taka umræð­una“ um það.

Alltaf þegar svona lagað ger­ist verða allir hinir að krefj­ast þess að umræðan sé upp­lýst og rök­studd. Það á ekki að leyfa fólki að kom­ast upp með að básúna skoð­anir sem byggja á hræðslu og fáfræði. Þaðan af síður skoð­anir sem byggja á hatri. Tján­ing­ar­frelsið þýðir ekki að við þurfum að umbera illa upp­lýstar og illa rök­studdar skoð­an­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiLeiðari
None