Hvar er hæfasta kona í heimi?

Heiða Kristín Helgadóttir
10016343694_84d396d26e_z.jpg
Auglýsing

Fimm karl­menn hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að skipa skuli annan karl­mann í stöðu hæsta­rétt­ar­dóm­ara þar sem fyrir eru átta karl­menn og ein kona. Hæsti­réttur er æðsti dóm­stóll þjóð­ar­innar og hefur m.a. það hlut­verk að greiða úr ágrein­ingi sem kemur upp í sam­fé­lag­inu um laga­setn­ingu Alþing­is. Alþingi náði þeim áfanga á dög­unum að vera skipað 49% konum og 51% körlum með inn­komu nokk­urra vara­manna af kven­kyni, þar með talið minn­ar. Hlut­fall kvenna á Íslandi hefur alltaf verið jafnt hlut­falli karla, hins vegar end­ur­spegl­að­ist þessi stað­reynd ekki í full­trúum kvenna á Alþingi fyrr en 14. sept­em­ber árið 2015.

Alþingi á að end­ur­spegla fjöl­breyti­leika sam­fé­lags­ins meðal ann­ars til þess að tryggja að laga­setn­ing sem þar er sett sé í góðu sam­ræmi við þann fjöl­breyti­leika sem hún á að ná utan um. Vald Alþingis til að setja lög sprettur frá valda­fram­sali borg­ar­anna í hendur þing­manna og -kvenna sem ættu, ef vel á að vera, að end­ur­spegla alla­vega þessa ein­föld­ustu skipt­ingu mann­fólks eftir kyni, fyrir utan allt annað sem upp á vantar ef litið er yfir þing­heim í dag eins og sam­fé­lags­stöðu, efna­hag, fötl­un, trú­ar­brögð, mennt­un, kyn­hneigð og húð­lit svo fátt eitt sé nefnt.

Auglýsing


Ef við gefum okkur að hið full­komna Alþingi með jafnri dreif­ingu og óend­an­legum fjöl­breyti­leika væri starf­andi á Íslandi, yrði laga­setn­ing þess aldrei hafin yfir gagn­rýni og hún gæti alltaf komið til með að enda á borði Hæsta­rétt­ar, svo að borg­arar geti varið sig og fengið úr því skorið hver réttur þeirra er. Hæsti­réttur þarf því að vera fram­leng­ing á þess­ari hugs­un, að þar sé til staðar ákveð­inn lág­marks fjöl­breyti­leiki. Hæsti­réttur getur ekki talið okkur trú um að hann starfi í ein­hvers konar kyn­lausum hjúp sem er var­inn og umvaf­inn laga­bók­stöf­um, því þeir eiga rætur sínar að rekja til þeirra sem settu lögin á hverjum tíma og eru því jafn ófull­komnir og öll mann­anna verk. Trú­verð­ug­leiki og sátt­máli okkar allra um að halda úti þessum stofn­um, fram­selja þeim vald og bera virð­ingu fyrir þeim er und­ir.



Þau sjón­ar­mið heyr­ast gjarnan að dóm­arar við Hæsta­rétt ættu að vera hæf­ustu lög­fræð­ingar á hverjum tíma. Vissu­lega göf­ugt sjón­ar­mið í sjálfu sér, en það stenst enga skoðun að þeir séu alltaf í yfir­gnæf­andi meiri­hluta karl­menn sama hvað ár er.





Eins og áður sagði hefur sam­setn­ing Alþingis alltaf verið karl­mönnum mjög hag­felld, raunar var það ekki fyrr en með inn­komu Kvenna­list­ans árið 1983 að hlut­föllin tóku að breyt­ast á Alþingi. Síðan eru liðin 32 ár og staðan er karl­mönnum enn hag­felld, líkt og hlut­föll karla við Hæsta­rétt.



Þau sjón­ar­mið heyr­ast gjarnan að dóm­arar við Hæsta­rétt ættu að vera hæf­ustu lög­fræð­ingar á hverjum tíma. Vissu­lega göf­ugt sjón­ar­mið í sjálfu sér, en það stenst enga skoðun að þeir séu alltaf í yfir­gnæf­andi meiri­hluta karl­menn sama hvað ár er. Ég kæri mig ekki um að til­heyra sam­fé­lagi, þar sem engu máli skiptir hversu mikið við konur menntum okk­ur, hversu mörgum trún­að­ar­störfum við sækj­umst eftir eða hversu hratt við hlaup­um, alltaf skal eitt­hvað annað metið mik­il­væg­ara og vega þyngra í þetta skiptið en sú hæfni sem við höfum fram að færa. Við erum svo hvattar áfram með þeim skila­boðum að okkur standi allir vegir fær­ir, ef við bara höldum áfram að reyna. Nei takk. Hættið þessum rugl­ingi, stigið til hliðar og myndið pláss fyrir aðra en ykkur sjálfa í æðstu stöður sam­fé­lags­ins hvort sem er á Alþingi eða við Hæsta­rétt, eða í það minnsta gefið fleirum en ykkur sjálfum færi á að að meta hvenær konur eru orðnar sam­keppn­is­hæfar við ykk­ur. Aðeins þannig getum við náð raun­veru­legum fram­förum, aukið sátt og virð­ingu fyrir grunn­stofn­unum og orðið betra og rétt­lát­ara sam­fé­lagi.



Ég hvet Ólöfu Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra til að beita sér í þessu máli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None