Læknadeilan í stærra samhengi

15416922713-1ded9deb5a-z.jpg
Auglýsing

Það lögð mikil áhersla á það að lækna­deilan sé sér­stök og ekki megi líta á hana í stærra sam­hengi. Ráða­menn segja að aðrar stéttir megi alls ekki læra neitt af þess­ari deilu. Ég held að þetta sé ekki rétt. Lækna­deilan er, svo maður noti klisju, kanarífugl­inn í kola­námunni.

Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfja- og eiturefnafræði og forseti Læknadeildar Háskóla Íslands. Magnús Karl Magn­ús­son, pró­fessor í lyfja- og eit­ur­efna­fræði og for­seti Lækna­deildar

Há­skóla Íslands­.

Við lifum í opnu sam­fé­lagi þar sem vinnu­mark­aður Íslend­inga nær til allrar Evr­ópu og fyrir þá sem skara fram úr standa dyr opnar um allan heim. Það sama gildir um um Ísland. Við getum laðað til okkar úrvals­fólk hvaðanæva að úr heim­inum til upp­bygg­ingar í okkar sam­fé­lagi. Þetta er mik­il­væg­asta efna­hags­mál fram­tíð­ar­inn­ar; það er að búa til sam­fé­lag sem laðar til sín vel menntað fólk sem skapar raun­veru­leg verð­mæti. Slík verð­mæta­sköpun byggir á góðri menntun og nýt­ingu vís­inda og tækni, sköp­unar og lista. Auð­lindir eins og orka og fiskur geta hjálpað en án vel mennt­aðs mannauðs munu þær ein­ungis skapa lág­launa­störf. Lækna­deilan snýst í grunn­inn um þessi grund­vall­ar­at­riði. Við viljum bjóða Íslend­ingum góða heil­brigð­is­þjón­ustu en slík þjón­usta byggir á verð­mætum í mennt­uðu úrvals­heil­brigð­is­starfs­fólki. Vel mennt­aðir og verð­mætir læknar geta í dag valið úr störfum í Skand­ínavíu, Hollandi, Bret­landi, Banda­ríkj­unum og víð­ar. Við verðum því að horfast í augu við þá stað­reynd. Annað hvort sættum við okkur við ann­ars flokks starfs­krafta með ann­ars flokks heil­brigð­is­þjón­ustu eða við löðum til okkar bestu lækn­ana til að tryggja okkur fyrsta flokks þjón­ustu. Ef að ráða­menn telja að lausnin á þess­ari deilu liggi í ein­hliða laga­setn­ingu þá er ekki mik­ils að vænta í fram­tíð­ar­sýn þeirra sömu ráða­manna. Það sama sem að ofan er skrifað um lækna gildir auð­vitað um aðra vel mennt­aða hæfi­leik­a­ríka ein­stak­linga. Hæfi­leik­a­ríkur verk­fræð­ing­ur, klar­ínettu­leik­ari eða tölv­un­ar­fræð­ingur mun velja sér leik­völl fyrir sinn sköp­un­ar­kraft þar sem hún fær best tæki­færi. Ef að við viljum njóta þeirra hæfi­leika í okkar sam­fé­lagi verðum við að umb­una fyrir slíka hæfi­leika.
Ef að við viljum njóta þeirra hæfi­leika í okkar sam­fé­lagi verðum við að umb­una fyrir slíka hæfileika.
Ef að íslenskir póli­tíkusar halda áfram að beina sjónum sínum fyrst og fremst til þeirra sem fjár­muni og völd eiga í nútíð og for­tíð í stað þess að beina aug­unum að þeim sem munu skapa verð­mæti í fram­tíð­inni munum við ekki skapa sam­fé­lag sem getur boðið fyrsta flokks heil­brigð­is­þjón­ustu, mennt­un, listir eða önnur raun­veru­leg verð­mæti. Ég lýsi því eftir djarfri fram­tíð­ar­sýn; fjár­festum í mennt­un, vel mennt­uðu fólki, vís­ind­um, nýsköpun og list­um. Þeir sem ganga aftur á bak inn í fram­tíð­ina og dást að for­tíð­inni munu fyrr en síðar vera staddir í heldur dap­urri nútíð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None