Millistéttin ætti að geta lifað af á dagvinnulaunum

Íris Geirdal
kjarninn_mjolkurvorur_vef.jpg
Auglýsing

Í dag eru margir hlutir sem ekki er hægt að gera í þessu "vel­ferðar þjóð­fé­lagi" á grunn­laun­um.

Grunn­laun er eitt­hvað sem ég hef alltaf talið, og tel að aðrir telji, að milli­stétt á Íslandi ætti að geta lifað á. Er það ekki ann­ars það sem á að kall­ast milli­stétt ann­ars?

Milli­stétt ætti að geta lifað á dag­vinnu­launum (sem þýðir að hægt sé að geta eldað á hverju kvöldi, nestað í skóla og eða vinnu og fætt gælu­dýr ef ein­hver eru) og geta lagt fyrir en samt átt nóg fyrir áhuga­máli og sam­veru­stundum fjöl­skyldu. Einnig að geta komið sér í vinnu eða skóla með strætó eða bíl. Alla­vega í mínum huga.

Auglýsing

Ég ætla því að telja upp nokkur útgjöld sem erfitt er að fá í haus­inn þegar fólk lifir á lág­marks­laun­um. Tann­lækna­reikn­ing­ar. Útgjöld vegna heil­brigð­is­þjón­ustu. Leik­skóla­gjalda. Mat­ar­á­skrift fyrir afkvæmin sem eru í skóla. Bíla­kostn­að­ur. Sund­kostn­að­ur. Strætó­kostn­að­ur. Afþrey­ing á sumr­in, hvort sem það eru ferðir inn­an­lands eða erlend­is. Kostn­aður vegna veik­inda. Dag­mömmu­gjöld. Afmæl­is­hald. Ferm­ing­ar. Fata­end­ur­nýj­un. Og svo fram­veg­is.

Heim­ili þarf ýmis­legt annað



Ekki gleyma að á grunn­launum er ekki einu sinni hægt að versla vel í kvöld­mat­inn alla daga ­mán­að­ar­ins.

Ekki gleyma að heim­ili þarf einnig að eiga fyrir ýmsum öðrum nauð­synj­um, svo sem hrein­læt­is­vörum, kló­sett­papp­ír, tann­burst­um, kló­sett­burst­um, þvotta­efni, mýk­ing­ar­efni, sjampói, sápu, og svo fram­veg­is. Ekki má gleyma lyfjum og eða vítamín­um.

Það liggur við að maður svitni við að lesa þetta vegna þess að ég veit að krafa grunn­launa er ein­hverra hluta vegna "hóf­söm", en það er eitt­hvað sem er tuggið ofan í samn­ings­að­ila og almenn­ing eins og við eigum að láta þeim líða betur með þessar mjög svo hóg­væru kröf­ur.

Þær eru ekki einu sinni hóg­værar heldur skammar­legar ef ekki glæp­sam­leg­ar. Af hverju?

Vegna þess að ef fólk á ekki fyrir góðum kvöld­mat hið minnsta 30 daga mán­að­ar­ins, hvað ger­ist?

Hver eru lang­tíma­á­hrif­in? Þau eru, járn­skort­ur, þreyta, offita og fleira nei­kvætt. Gleymið skipt­unum sem við for­eldrar höfum leyft börnum okkar að fara í bíó án okk­ar, því við eigum ekki nægan pen­ing til að gera þetta með þeim. Munið eftir skipt­unum sem for­eldrar grípa sam­loku á meðan börnin borða kjöt­boll­urnar (vegna þess að kjöt­vara er dýr og fjár­hag­ur­inn fer í rúst ef alltaf yrðu keyptir tveir bakkar af, hakki, kjöti, farsi eða kjúkling­i). Hver hefur ekki gert þetta sem á að lifa á venju­legum laun­um?

Kjósum lof­orð ekki svik



Per­sónu­lega er ég líka mjög þreytt á að Íslend­ingar kalli íslend­inga fífl. Að þessir hálf­vitar hafi nú kosið sömu heimsk­una yfir sig aftur og aft­ur.

En vitið þið hvað. Fólk kýs kosn­inga­lof­orð en ekki svik. Því miður þá hefur vonin horfið og lof­orðin hafa verið brotin og virt að vettugi.

En það er ekki okkur almenn­ingi að kenna. Þeir sem berj­ast fyrir almenn­ingi í hálaun­uðum nefndum og störfum bera ábyrgð. Til dæmis verka­lýðs­fé­lög­in.

Við höfum lifað und­an­farin ára­tug af í gegnum svik­semi, frænd­hygli, kreppu og fall bank­anna. Við settum met í að setja fjölda fólks á svarta lista og einnig met í að fjöl­skyldur missi heim­ili sín. Og við höfum örugg­lega sett met í mót­mæl­um.

Ég sem borg­ari og mann­eskja á venju­legum launum sem lifi venju­legu lífi hef eig­in­lega ekki hug­mynd um hvað næsta skref er. Nema að ég mæti á mót­mæli, ætla að kjósa pírata og vona svo það besta.

Hins­vegar veit ég eins og allt heil­vita fólk að 300.000 króna grunn­laun eftir þrjú ár eru ekki einu sinni raun­hæf.

Þannig ég veit líka að allir munu standa í sömu sporum bráð­lega.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None