Nýársheiti og hvernig skal brjóta þau

Kjartan Sveinn Guðmundsson gerir upp hátíðarnar, árið sem var að líða og það sem hann ætlar á gera á því nýja.

Auglýsing

Kæra lesönd, nú þegar ég hef tapað fimm kílóum í loka­próf­um, grætt 8 yfir hátíð­irnar og skotið sirka 20 flug­eldum eftir sirka jafn­marga bjóra er kom­inn tími til þess að falla í móki djamm­visku­bits fyrir eigin rit­hendi og segja frá því hvernig ég mun brjóta nýárs­heitin mín.

Til sam­an­burðar gekk síð­asta ár frekar vel. Ég útskrif­að­ist úr mennta­skóla, fór í evr­ópu­reisu, háskóla og varð algjör­lega gjald­þrota. Ég held að sterk byrjun á nýju ári sé því að manna mig upp, taka á honum stóra mín­um, horfast í augu við vanda­málið og taka náms­lán fyrir einum Tuborg Grön á stúd­enta­kjall­ar­anum sem kostar 650 kr., í takt við nýárs­heiti um aukið fjár­mála­læsi.

Á meðan ég sötra hann, sem stoltur stúd­ent í skuld, mun ég gera fasa­skipta ramma­á­ætlun um að minnka nautna­lyfja­neyslu um 25% fyrir árið 2033, enda er núver­andi neysla ósjálf­bær og fram úr öllu hófi.

Síðan er það önnur neysla, til að mynda kjöt og fata­kaup. Ég mun taka annað náms­lán fyrir einum litlum Hlölla­bát og gosi á 1.150 kr. (stúd­enta­til­boð) strax í vegan­ú­ar, en ég ætl­aði einmitt að taka þátt í ár! Bara að hugsa um það er mest gef­andi lífs­reynsla sem ég hef upp­lif­að.

Ég iðr­ast Hlölla­báts­ins og ákveð að sýna iðrun í gjörð­um. Með ásjónu þenkj­andi manns, sposkur á svip, borða ég græn­met­is­svið. Nammi nammi namm. Ég elska öll dýr og skyn­lausar skepn­ur, líka leigusala!

Auglýsing
Þarna fór ég með það. Ég var svo­leiðis búinn að lofa mér því­líkt að hætta að tala um póli­tík jafn mik­ið. Á nýja árinu mun ég ein­ungis taka vinstri­beygjur í umferð­inni. Finna nýju síma­skránna, taka Ísland úr Golfstraumnum og segja það gott. Alls ekki fara á nein fleiri bjór­kvöld undir því yfir­skini að „hafa áhuga á starf­in­u.“ ég bý ekki einu sinni í kjör­dæm­inu sem bjór­kvöldið var haldið í. Mér þykir volgur Gull bara svo góð­ur.

Það fer líka alveg með mann að vera alltaf í stjórn­málum ef maður gerir ekk­ert annað en að læra og fara út með hund­inn. Mik­il­væg­asta nýárs­heitið er því að sjálf­sögðu að hreyfa mig meira. Ég tek enn eitt náms­lánið og fjár­fest í árskort í lík­ams­rækt. Síðan mun ég fara í rækt­ina sirka 12 sinnum yfir þriggja mán­aða skeið og nota það síðan ein­ungis á sunnu­dög­um, fer þunnur í pott­inn og neyð­ist til að hlusta á gamla, súra ras­ista. Svona eins og Face­book í hljóð­bók­ar­formi.

Í lokin vil ég óska öllum nema þeim sem eru á bak­við skert kjör náms­manna eða auk­innar kjaragliðn­unar gleði­legs nýs árs og þakka kær­lega fyrir það gamla. 

Höf­undur er nemi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar