Nýlendustefna á haus

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
14097534298_f246440b68_z.jpg
Auglýsing

Íslend­ingar hafa ekki efni á að reka eigin Land­helg­is­gæslu. Þeir hafa heldur ekki efni á að reka almenni­legt og mann­úð­legt fang­els­is­kerfi og rétt­ar­kerfið er fjársvelt. Íslend­ingar hafa heldur ekki efni á að gera við götur höf­uð­borg­ar­inn­ar, vegi út á landi eða þjóð­veg­inn. Íslend­ingar hafa heldur ekki efni á því að reka heil­brigð­is­kerfið með sóma­sam­legum hætti og þess­vegna liggja sjúk­lingar á göngum og mat­stof­um, jafn­vel kló­sett­um. Þá hefur mennta­kerfið verið fjársvelt og er enn og við virð­umst heldur ekki getað rekið almanna­út­varp með sóma­sam­legum hætti.

En á meðan þessu gengur þá moka hlut­hafar fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi arði, þ.e. hreinum hagn­aði sem sem nemur millj­örðum króna, í eigin vasa með bros á vör. Starfs­fólkið getur ekki fengið launa­hækk­an­ir, það veldur verð­bólgu. En það getur fengið frost­p­inna, þeir valda nefni­lega ekki verð­bólgu. Já, það er svig­rúm fyrir frost­p­inna hjá sægreif­un­um, léns­herrum þessa lands. Í léns­kerfi Evr­ópu áttu kóngar og yfir­stéttin land­ið, hin sam­eig­in­legu gæði, sem leigt var leigu­lið­um. Hér á Íslandi fá útgerð­ar­menn hins­vegar hin sam­eig­in­legu gæði til eign­ar, sem þeir geta ráð­stafað að eigin vilja, leigt eða selt og veð­sett eftir þörf­um.

Ríki mis­skipt­ingar



Svona er Ísland í dag. Um er að ræða ríki sem byggir á mis­skipt­ingu, þar sem lág­launa­hópar eru í hlut­verki launa­þræla, en eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna velta sér upp úr auði, en hafa t.d. sumir ekki hug­mynd um það hvað starfs­fólkið hefur í laun. Enda er það algert auka­at­riði. Aðal­at­riðið er að gróð­inn lendi á réttum stað, að auð­lind­in, sem okkur er sagt að sé í eigu þjóð­ar­inn­ar, skili sem mestum arði til sinna eig­enda og hlut­haf­anna. Og þetta með „þjóð­ar­eign­ina“ er nátt­úr­lega ein mesta hræsni sem um getur í opin­berri umræðu. Fisk­ur­inn í sjónum er ekk­ert í eigu þjóð­ar­inn­ar, það eru um 70 aðilar sem eiga fisk­inn í sjónum og þar af eru nokkrir tugir ein­stak­linga sem eiga meira en 50% kvót­ans. And­virði hans nemur tug­um, ef ekki hund­ruðum millj­örðum króna. Þess má geta að frá 2009 til 2014 var hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­ins (fyrir afskrift­ir, s.k. EBIT­DA) um 450 millj­arðar króna. Á þessu tíma­bili greiddi sjáv­ar­út­veg­ur­inn um 32 millj­arða í veiði­gjöld, sam­kvæmt grein eftir Ind­riða H. Þor­láks­son, sem birt­ist á vefnum Herðu­breið um miðjan apr­íl.

Öfug nýlend­urstefna



Á Íslandi er rekin það sem ég vill kalla „öfug nýlendu­stefna.“ Á 18. og 19.öld rudd­ust Evr­ópu­menn til Afr­íku og sölsuðu hana undir sig, með öllum sínum auð­æf­um. Merg­sugu hana. Meðal ann­ars voru lagði vegir til þess eins að koma auð­lind­unum til hafs, svo hægt væri að flytja þær úr landi. Nýlendu­herr­arnir voru ekki inn­lend­ir, heldur aðkomn­ir. Íslenskir nýlendu­herrar eru hins­vegar inn­lendir og vinna í skjóli stjórn­valda sem strjúka þeim og klappa. Á meðan vinnur starfs­fólkið á launum sem duga ekki til fram­færslu. Þetta er hinn blá­kaldi veru­leiki sem blasir við á Íslandi í dag, þar sem græðgin lifir góðu lífi.

Hér við­gengst ein­hver sér­kenni­leg­asta blanda af léns og nýlendu­veldi sem um get­ur, borin uppi af fjár­sterkum sér­hags­munum sem eru með stjórn­mála­stétt­ina í vas­an­um. Þetta verður að breyt­ast. Lausnin felst meðal ann­ars í nýrri kyn­slóð stjórn­mála­manna sem eru ekki fæddir og upp­aldir í hug­mynda­heimi sér­hags­muna. Látum almanna­hags­muni í for­gang.

Auglýsing

Höf­undur er stjórn­mála­fræð­ing­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None