Olíuvopnið mikla

olia.jpg
Auglýsing

Olía er eitt helsta hrá­efni ver­aldar og er mað­ur­inn algjör­lega háður henni. Því hefur lækkun og hækkun á olíu­verði gríð­ar­leg áhrif um allan heim, en heims­mark­aðs­verð á olíu hefur einmitt lækkað mikið núna und­an­far­ið. Þessi þróun hefur sér­stak­lega haft mikil áhrif hér á Íslandi og hefur bens­ín­verð til að mynda lækkað um rúm­lega 20% frá því í júní. Að mati grein­ingar Íslands­banka telst verð­lækk­unin á elds­neyt­is­verði þó ein­ungis dropi í hafið miðað við hvað ætla mætti í sam­an­burði við lækk­un­ina erlend­is. Mikil lækkun bens­ín­verðs gæti sparað íslenskum heim­ilum og fyr­ir­tækjum á annan tug millj­arða króna í elds­neytis­kostnað á ári, en áætlað er að hver króna í elds­neyt­is­verði hér á Íslandi kosti íslenskar fjöl­skyldur um 360 millj­ónir króna. Óvíst er þó hvort olíu­verð muni halda áfram að lækka eða skyndi­lega hækka aft­ur.

Bjarni Halldór Janusson, nemi. Bjarni Hall­dór Jan­us­son, nem­i.

Póli­tískur leikur Sádí-­Ar­abíu



Anatole Kalet­sky, hag­fræð­ingur og þekktur pistla­höf­undur The Economist, segir í pistli sínum, sem birtur var nýlega á vef Reuters, að Sádí-­Ar­abía sé mik­ill áhrifa­valdur hvað olí­verð á heims­mark­aði varðar og segir að landið standi að öllum lík­indum bak við núver­andi lækkun olíu­verðs. Að und­an­förnu hefur Sádí-­Ar­abía einmitt verið eina OPEC olíu­ríkið sem barist hefur gegn öllum hug­myndum um að draga úr fram­leiðslu eða hækka aftur olíu­verð.

­Mark­mið Sádí-­Ar­abíu með þess­ari lækkun er vit­an­lega að reyna koma höggi á Íran og Rúss­land, lönd sem eru háð stöð­ugu olíu­verði á heims­mark­aði. Þetta valda­tafl Sádí-­Ar­abíu á rætur sínar að rekja til ástands­ins í Sýr­landi.

Auglýsing

Mark­mið Sádí-­Ar­abíu með þess­ari lækkun er vit­an­lega að reyna koma höggi á Íran og Rúss­land, lönd sem eru háð stöð­ugu olíu­verði á heims­mark­aði. Þetta valda­tafl Sádí-­Ar­abíu á rætur sínar að rekja til ástands­ins í Sýr­landi. Þar ríkir stjórn sér­trú­ar­hóps shí­a-múslíma, ala­vít­ar. Þess vegna hefur stjórnin í Íran, sem sam­anstendur af shí­a-múslímum, stutt Assad stjórn­ina í Sýr­landi svo ákaf­lega, enda hafa þeir trú­ar­legra hags­muna að gæta þar. Rússar hafa að auki stutt Assa­d-­stjórn­ina mjög ákaf­lega og er það vegna við­skipta­hags­muna lands­ins við stjórn­ina í Sýr­landi. Á hinn bóg­inn hafa upp­reisn­ar­menn í Sýr­landi, sem sam­an­standa að mestu af súnní-múslímum, hlotið mik­inn stuðn­ing frá stjórn súnní-múslíma í Sádí-­Ar­ab­íu. Sádarnir eru orðnir þreyttir á ástand­inu í Sýr­landi og beina núna sjónum sínum að Rússum og Írön­um. Mark­mið Sádí-­Ar­abíu er að skaða Rúss­land og Íran og besta leiðin til þess að ná því mark­miði er með því að lækka olíu­verð.

SYRIA-POLITICS-ASSAD Rússar hafa stutt Assa­d-­stjórn­ina mjög ákaf­lega og er það vegna við­skipta­hags­muna lands­ins við stjórn­ina í Sýr­landi. Á hinn bóg­inn hafa upp­reisn­ar­menn í Sýr­landi, sem sam­an­standa að mestu af súnní-múslímum, hlotið mik­inn stuðn­ing frá stjórn súnní-múslíma í Sádí-­Ar­ab­íu. Sádarnir eru orðnir þreyttir á ástand­inu í Sýr­landi og beina núna sjónum sínum að Rússum og Írön­um.

Olían er sterkasta vopn Sádí-­Ar­abíu



Með olíu­lækk­un­inni er Sádí-­Ar­abía að koma stóru höggi á Rúss­land og Íran. Þessi lækkun á heims­mark­aði er jú skað­leg fyrir olíu­ríki eins og Rúss­land og Íran. Lækk­unin er því nán­ast rot­högg fyrir rúss­neskt hag­kerfi. Svo dæmi sé nefnt fjár­magnar olía Rússa um 45% af útgjöldum þeirra og því er lækk­andi olíu­verð mjög skað­legt Rúss­um. Í kjöl­far lækk­unar olíu­verðs hefur rúss­neska rúblan, gald­mið­ill Rússa, misst meira en fimmt­ung af verð­gildi sínu gagn­vart Banda­ríkja­dal á ein­ungis örfáum dög­um. Stýri­vextir hafa svo verið hækk­aðir úr rúm­lega 10% í 17% og rúss­neska fjár­mála­ráðu­neytið hefur þurft að selja hluta af gjald­eyr­is­forða sínum til að styðja við rúbluna. Hag­fræð­ingar áætla að rúss­neska hag­kerfið eigi eftir að upp­lifa sam­drátt upp á rúm 5% hald­ist olí­verð á heims­mark­aði svipað allt árið 2015.

Að lokum



Þessar tölur hér að ofan sýna svart á hvítu hversu mikil áhrif Sádí-­Ar­abía getur haft á heim­inn í kringum sig. Þegar eitt ríki nær að kné­setja önnur ríki og hefur svona mikil áhrif á heim­inn eins og raun ber vitni, þá er um ofurefli að ræða. Mað­ur­inn er sá sem skapað hefur þetta ofurefli. Hann er svo háður olí­unni að svona öfl­ugt olíu­ríki eins og Sádí-­Ar­abía getur ráðskast með heim­inn og hag­kerfi hans að vild. Þetta gríð­ar­lega vald Sádí-­Ar­abíu er jú ekk­ert nema birt­ing­ar­mynd neyslu- og gróða­hyggju manns­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiÁlit
None